Fella- og Hólakirkja

 

Kirkjustarf eldri borgara fellur niður í dag vegna veðurs.


Ragnhildur Ásgeirsdóttir, 10/1 2012

FJÖLSKYLDUGUÐSÞJÓNUSTA sunnudaginn 15.janúar 2012

Fjölskylduguðsþjónusta kl.11. Prestur sr. Svavar Stefánsson. Organisti Guðný Einarsdóttir. Þórey Dögg Jónsdóttir djákni leiðir stundina. Listasmiðjan Litróf leiðir safnaðarsöng undir stjórn Ragnhildar Ásgeirsdóttur djákna. Mikill söngur, fjölbreytt og skemmtileg dagskrá. Meðhjálpari er Kristín Ingólfsdóttir. Verið innilega velkomin í Fella- og Hólakirkju.

Ragnhildur Ásgeirsdóttir, 10/1 2012

GLEÐILEGT NÝTT ÁR!

Starfsfólk og sóknarnefndir kirkjunnar óska öllum gleðilegs árs og hvetjum ykkur að leggja leiðina í kirkjuna. Safnaðarstarfið er að hefjast á ný eftir hátíðarnar. Hér má t.d. sjá hvað er framundan í starfi eldri borgara: http://kirkjan.is/fellaogholakirkja/safnadarstarf/eldri-borgarar/

Gry Ek, 5/1 2012

Helgihald um jól og áramót í Fella- og Hólakirkju

Lesa áfram …

Gry Ek, 19/12 2011

Jólatónleikar Kórs Fella- og Hólakirkju

Þriðjudaginn 20. desember kl. 20:30 mun Kór Fella- og Hólakirkju ásamt þeim Áshildi Haraldsdóttur flautuleikara og Katie Buckley hörpuleikara halda jólatónleika við kertaljós í Fella- og Hólakirkju. Fluttar verða sígildar jólaperlur frá ýmsum tímum og löndum, m.a. kaflar úr Hnotubrjótnum eftir Tchaikovsky, íslensk sígild jólalög og jólalag frá Katalóníu auk þess sem áheyrendum gefst tækifæri á að taka þátt í almennum söng. Einsöngvarar á tónleikunum verða þær Ásdís Arnalds sópran, Eyrún Ósk Ingólfsdóttir sópran og Elfa Dröfn Stefánsdóttir mezzósópran en þær eru félagar í kórnum. Stjórnandi og orgelleikari er Guðný Einarsdóttir. Aðgangseyrir er 1500 kr. og er súkkulaði og piparkökur í boði eftir tónleikana. Allir eru hjartanlega velkomnir á ljúfa og notalega tónleika rétt fyrir jólin!

Guðný Einarsdóttir, 15/12 2011

Jólasöngvar við kertaljós kl.11 sunnudaginn 18.desember

Jólasöngvar við kertaljós kl.11. Notaleg stund með jólasöngvum og  ritningarlestri. Ragnhildur Ásgeirsdóttir djákni og Þórey Dögg Jónsdóttir djákni leiða stundina. Kór Fella- og Hólakirkju syngur og leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur organista. Kirkjuvörður og meðhjálpari er Kristín Ingólfsdóttir. Verið innilega velkomin í kirkjuna okkar.

Ragnhildur Ásgeirsdóttir, 13/12 2011

Sunnudagurinn 11.desember 2011

Jólaskemmtun kl.11. Gengið verður í kringum jólatréð. Kannski koma gestir úr fjöllunum. Mikið fjör og gaman.

Guðsþjónusta kl.14. Sr. Gísli H. Kolbeins prédikar. Sr.Guðmundur Karl Ágústsson, Ragnhildur Ásgeirsdóttir djákni og Þórey Dögg Jónsdóttir djákni þjóna fyrir altari. Gerðubergskórinn syngur og leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Kára Friðriksson. Organisti Guðný Einarsdóttir. Kaffiveitingar eftir stundina. Meðhjálparar Kristín Ingólfsdóttir og Jóhanna Freyja Björnsdóttir.

Ragnhildur Ásgeirsdóttir, 6/12 2011

Tónleikar Litrofsins

Miðvikudaginn 7.desember kl. 20.00 verður fjör í kirkjunni þegar Litrófið heldur sína aðventutónleika.

Komið og takið þátt í gleðinni og bjóðið vinum og vandamönnum með.

Aðgangur 500 krónur.

Gry Ek, 1/12 2011

Sunnudagurinn 4.desember

Fjölskylduguðsþjónusta kl.11. Prestur sr.Guðmundur Karl Ágústsson og Ragnhildur Ásgeirsdóttir djákni. Organisti Guðný Einarsdóttir.

Börn og foreldrar af Krílasálmanámskeiði haustsins taka þátt í guðsþjónustunni. Meðhjálpari og kirkjvörður er Kristín Ingólfsdóttir. Verið innilega velkomin.

 

Ragnhildur Ásgeirsdóttir, 29/11 2011

FYRSTI SUNNUDAGUR Í AÐVENTU

Guðsþjónusta kl.11. Prestur sr. Svavar Stefánsson. Kór kirkjunnar leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur organista. Sóley Björk Einarsdóttir leikur á trompet. Konur úr kvenfélagi Fjallkonurnar tendra fyrsta kertið á aðventukransinum. Sunnudagaskóli á sama tíma. Náttfatapartý hjá börnunum. Umsjón og ábyrgð með sunnudagaskólanum hefur Þórey Dögg Jónsdóttir.

Eftir guðsþjónustuna mun Guðný Einarsdóttir organisti flytja örtónleika. Þar flytur hún sálmaforleiki tengda aðventu og jólum eftir J. S. Bach. Ókeypis aðgangur og allir velkomnir.

Aðventukvöld kirkjunnar hefst kl.20. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson leiðir stundina. Kirkjukórinn og Listasmiðjan Litróf syngja og leiða almennan safnaðarsöng undir stjórn þeirra Guðnýjar Einarsdóttur og Ragnhildar Ásgeirsdóttur. Guðfræðingurinn og útvarpsmaðurinn Ævar Kjartansson flytur hugleiðingu. Boðið verður upp á veitingar í safnaðarheimili kirkjunnar eftir stundina.

Verið innilega velkomin í Fella- og Hólakirkju

Ragnhildur Ásgeirsdóttir, 22/11 2011

Kirkjan er opin mán-fim frá kl. 09:00-17:00 og fös kl 9:00-15:00.
Sími: 5573280






Viðtalstímar presta og djákna


Sr. Svavar Stefánsson, sóknarprestur Fellasóknar
mán-fim kl.11-12.
Farsími; 860 2266.
svavar.stefansson@kirkjan.is, Prédikanir og pistlar

Sr. Guðmundur Karl Ágústsson, sóknarprestur Hólabrekkusóknar þri-fös kl.11-12.
Farsími 896 4853.
gudhjor@simnet.is.

Ragnhildur Ásgeirsdóttir, djákni
Viðtalstími eftir samkomulagi
Farsími: 864 0564
ragnhildur@simnet.is.
Pistlar og ljóð


Þórey Dögg Jónsdóttir, djákni
Viðtalstími eftir samkomulagi
Farsími: 698 1206
thj32@hi.is.

VELKOMIN(N) Í ÞJÓÐKIRKJUNA:
- - - - - - - - - - - - - -
SKRÁÐU ÞIG
SKRÁÐU BARNIÐ ÞITT
NÁNARI UPPLÝSINGAR

 

Fella- og Hólakirkja, Hólaberg 88, 111 Reykjavík. Sími 557 3280 , fax 567 7415 · Kerfi RSS