Æskulýðsstarf
Fundir í unglingadeild eru haldnir í hverri viku á miðvikudögum kl. 20.00-21.30, og við vonum að þér finnist dagskrá haustsins spennandi. Á hverjum fundi gerum við eitthvað skemmtilegt saman og svo er fræðsla eða hugvekja út frá boðskap Biblíunnar.
Vertu með í frábærum hóp í vetur og njóttu þess að taka þátt í skapandi og skemmtilegu félagsstarfi.
Allar nánari upplýsingar um starfið veitir Perla í síma 848-9880 og Arnar í síma 699-2357 og komfellaogholakirkja@gmail.com
Kirkjan býður upp á fjölbreytt, skemmtilegt og uppbyggjandi starf fyrir unglinga á aldrinum 13-16 ára. Starfið er liður í forvarnarstarfi kirkjunnar, þar er lögð áhersla á að byggja upp sjálfsmynd, lífsleikni og samskipti. Allir unglingar í 8.-10.bekk eru velkomnir.