Fella- og Hólakirkja

 

Sóknir og söfnuðir

Það eru tveir söfnuðir sem standa saman að rekstri Fella- og Hólakirkju. Þar starfa tveir prestar, sr. Svavar Stefánsson er sóknarprestur Fellasóknar og sr. Guðmundur Karl Ágústsson er sóknarprestur í Hólabrekkusókn. Fellasókn nær yfir Fellahverfið, Vesturberg allt og Austurberg sunnan Gerðubergs. Hólabrekkusókn nær yfir Hólahverfið, Bergin og Austurberg norðan Gerðubergs.

Ein sóknarnefnd starfar í hvorri sókn. Hlutverk sóknarnefnda er að styðja og fylgjast með safnaðarstarfinu, sjá um eignir kirkjunnar, viðhald húss og búnaðar, ráðningu starfsfólks og ráðstöfun þess fjármagns sem er til ráðstöfunar. Þá er starfandi framkvæmdaráð sem í sitja einn fulltrúi úr hvorri sóknarnefnd, fjármálastjóri kirkjunnar og prestarnir. Sameiginlegir sóknarnefndarfundir eru haldnir mánaðarlega að jafnaði en fundir í framkvæmdaráði oftar eða þegar þurfa þykir.

Allt er þetta gert í náinni samvinnu við prestanna sem skipuleggja starfið sín á milli í samráði við annað starfsfólk. Starfsmannafundir eru haldnir vikulega þar sem starfið er skipulagt og teknar ákvarðanir um þá starfsemi sem er í gangi. Góður starfsandi ríkir milli alls starfsfólksins og sóknarnefndanna og hefur ætíð gert.

Við kirkjuna starfar organisti, Guðný Einarsdóttir og Ragnhildur Ágeirsdóttir, djákni í fullu starfi. Í hlutastarfi eru kirkjuverðir og meðhjálparar, Jóhanna Freyja Björnsdóttir og Kristín Ingólfsdóttir, Hrefna Sigurðardóttir, gjaldkeri kirkjunnar.

Formaður Fellasóknar er Gry Ek Gunnarsson og formaður Hólabrekkusóknar er Benedikta G. Waage.

 

Fella- og Hólakirkja, Hólaberg 88, 111 Reykjavík. Sími 557 3280 , fax 567 7415 · Kerfi RSS