Ferming sem hátíð
Það er gaman að koma saman og hitta fólk. Það er gaman að hitta ættingja sína og vini og halda veislu. Fermingin er tilefni til að halda veislu og fagna því að ég eða þú ert á leiðinni að verða fullorðin manneskja. Í flestum samfélögum manna eru slíkar hátíðir til að halda upp á tímamót í lífi fólks.
Kirkjan tengist slíkum tímamótum. Skírn fylgir á eftir fæðingu, ferming þegar barn breytist í fullorðinn einstakling, gifting þegar tveir einstaklingar vilja tengjast og jafnvel eignast börn, útför við ævilok.



