Hvernig fer fermingin fram?
Fermingin fer oftast fram í venjulegri messu. Að loknu hefðbundnu upphafi messunnar er komið að því er tengist fermingunni:
- Fermingarræða (eða predikun). Þar ávarpar presturinn venjulega fermingarbörnin og talar við þau um þau tímamót sem fermingin er í lífinu.
- Sálmur. Oft er sunginn sálmur er tengist fermingarathöfninni.
- Ávarp – trúarjátning. Presturinn minnir fermingarbörnin á að þau séu komin til að játast Jesú Kristi sem þau voru helguð í skírninni. Síðan rísa allir á fætur og fara saman með trúarjátninguna.
- Sjálf fermingin. Börnin ganga upp að altarinu í þeirri röð sem hefur verið ákveðin. Presturinn spyr þessarar spurningar: “NN, vilt þú leitast við að hafa Jesú Krist að leiðtoga lífsins?” Barnið svarar “Já“. Síðan krýpur það á gráðurnar (hnéfallið fyrir framan altarið), presturinn leggur hönd á höfuð þess og segir t.d.: “Guð, faðir sonur og heilagur andi varðveiti þig í skírnarnáð þinn til eilífs lífs“. Barnið rís á fætur og presturinn réttir því höndina og segir “Friður sé með þér“. Þá flytur barnið (eða presturinn) minnisvers sem barnið hefur valið.
- Eftir ferminguna þegar börnin eru öll komin aftur til sæta sinna hefst svo altarisganga þar sem fermingarbörnin ganga til altaris með fjölskyldum sínum.



