Fræðsla
Auk viðtala við fólk og fjölskyldur er boðið upp á fræðsluerindi um hjónabandið og fjölskyldulífið. Einnig hefur verið boðið upp á námskeið fyrir brúðhjón til undirbúnings fyrir hjónabandið, sem auglýst er til presta og í fjölmiðlum á hverju vori.
Næsta námskeið
Rætt hefur verið um að breyta fyrirkomulaginu varðandi þessi námskeið í þá veru að fjölskylduráðgjafi geti mætt í kirkjurnar þar sem prestar eiga fund með tilvonandi brúðhjónum. Þar gæfist tækifæri fyrir verðandi hjón að spyrja um það sem þeim liggur á hjarta um hjónabandið almennt, stofnun fjölskyldu, hvað ber að varast í samskiptum og hvað styrkir hjónatengslin.
Nánari upplýsingar fást hjá Fjölskylduþjónustu kirkjunnar í síma 528 4304. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir í netfangið gudlaug.magnusdottir@kirkjan.is.



