Viðtöl og ráðgjöf
Þið getið leitað til okkar þegar:
- þið viljið bæta hjónaband ykkar eða sambúð
- þú vilt eiga betri samræður við maka þinn
- þið viljið meiri frið og sátt heima
- kominn er trúnaðarbrestur í hjónabandið eða sambúðina
- þið viljið bæta kynlífið
- þið hafið leitt hugann að skilnaði
- þið hafið ákveðið að skilja og viljið ræða velferð barnanna
- þið viljið bæta samskipti í stjúpfjölskyldu
- styrkja þarf samband við barn eða ungling í fjölskyldunni
- auka þarf sátt varðandi umgengni við barn / börn eftir skilnað foreldra
Ykkur stendur til boða að koma í viðtöl.
Í viðtölum og samvinnu við fjölskyldufræðinga gæti vandi ykkar skýrst og lausnir fundist. Yfirleitt er best að þeir sem deila vandanum komi saman í viðtölin. Oftast er hvert viðtal um einnar klukkustundar langt. Viðtölin geta dreifst á nokkra mánuði. Hvert viðtal kostar kr. 4000.



