Eldgos í EyjafjallajökliFréttir og efni tengt eldgosi í Eyjafjallajökli sem hófst í apríl 2010. Sumardagurinn fyrsti undir EyjafjöllumÖskufallið undir Eyjafjöllum veldur miklu álagi hjá þeim sem fyrir því verða. Prestar svæðsins taka höndum saman við að sinna sóknarbörnum á staðnum. Sr. Halldór Gunnarsson í Holti hefur ekki farið í varhluta af öskunni á sínum bæ, en hann hefur einnig heimsótt alla bæi þar sem askan liggur yfir í sinni sókn. Sumarkomu verður þó fagnað á svæðinu. Samkoma verður fyrir börn og fullorðna í Gunnarshólma í dag og guðsþjónusta í Stóradalskirkju í kvöld. Það sem aldrei bregstHugir okkar og fyrirbænir eru með fólkinu sem glímir við afleiðingar eldgossins og öskufallsins. Hamfarirnar ógna nú allri lífsafkomu og framtíð þessa fólks, segir biskup Íslands í pistli um gosið í Eyjafjallajökli á trúmálavefnum. Lesa áfram á trúmálavefnum. Láttu, Drottinn, birta af degi á ný yfir ÍslandiKarl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, hefur sent prestum Þjóðkirkjunnar bréf þar sem hann mælist til að í messum komandi sunnudaga verði beðið fyrir þeim sem búa við ógnir eldgossins í Eyjafjallajökli. Gerði glufu í öskufallið meðan fermt var í Vík“Það var eins og gerði glufu meðan við vorum að ferma og í fermingarveislunum og svo hélt þetta áfram. Um kvöldið kom meira öskufall” sagði sr. Haraldur Kristjánsson sóknarprestur í Vik í Mýrdal en það var fermt í kirkjunni þar s.l. sunnudag. Skipulag áfallahjálpar á gossvæðinuSamráðshópur áfallahjálpar sem í eiga sæti fulltrúar Þjóðkirkjunnar, Rauða kross Íslands, landslæknisembættisins, Almannavarna og Landspítalans hélt fræðslufund í safnaðarheimilinu á Hellu vegna áhrifa gossins í Eyjafjallajökli á fólk á svæðinu. Þorvaldur Karl Helgason biskupsritari er fulltrúi Þjóðkirkjunnar í hópnum. |
|||||