LWF2010

Heimsþing Lútherska heimssambandsins er haldið í Stuttgart 20.-27. júlí 2010. Yfirskrift þingsins er „Gef oss í dag vort daglegt brauð“. Nánar má fræðast um þingið á vef þingsins á www.lwf-assembly.org.

Send til að næra, þjóna og vera málsvarar

LWF2010 - Kosið á þingfundi

Á lokadegi lútherska heimsþingsins í Stuttgart var gengið frá skilaboðum þingsins til aðildarkirknanna. Skjalið inniheldur sýn, hvatningu og skuldbindingu til að vinna að málum sem eru knýjandi í lífi kirkjunnar og samfélagsins.

Samfélag er gjöf frá Guði

LWF2010 - Sr. Martin Junge, verðandi framkvæmdastjóri LH

Martin Junge, sem verður næsti framkvæmdastjóri LH, ávarpaði heimsþingið í Stuttgart í gær. Hann talaði um bakgrunn sinn, hlutverk trúarinnar í heiminum og áherslur í starfi LH næstu árin. 

Fimm nýjar kirkjur teknar inn í LH

LWF2010 - Stjórn sambandsins fundar

Á stjórnarfundi Lútherska heimssambandsins 18.-19. Júlí 2010 var samþykkt að veita fimm kirkjum aðild að samfélagi lútherskra kirkna innan LHS. Þessar kirkjur eru allar í Asíu, þrjár frá Myanmar, ein á Indlandi og ein í Nepal. 

Ályktanir um réttlæti, mannréttindi og umhverfisvitund samþykktar í Stuttgart

LWF2010 - Kosið á þingfundi

Afrakstur heimsþings LH liggur annars vegar í ályktunum sem fara í gegnum lagahóp þingsins og hins vegar í skjali sem inniheldur boðskap þingsins til aðildarkirknanna. Á næst síðasta degi þingsins voru nokkar ályktanir um áherslur í starfi LH ræddar og afgreiddar.  

HIV/AIDS - forvarnir í þágu lífsins

LWF2010 - Meðlimir úr Betseranai kórnum frá Zimbabwe

LH stendur fyrir átaki í baráttunni við HIV/AIDS faraldurinn sem ógnar lífi og heilsu milljóna manna út um allan heim. Árlega smitast 2.7 milljónir manna af HIV veirunni. Á hverjum degi smitast 3700 fullorðnir, 2500 ungmenni og 1200 börn.  Mikill meirihluti þeirra sem eru sýktir og þeirra sem deyja úr sjúkdómnum búa í Afríku sunnan Sahara. 

Óréttmætar skuldir þjóðríkja ræddar á heimsþingi LH

LWF2010 - Karl Sigurbjörnsson talar á heimsþingi LH í Stuttgart

Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands flutti kveðju til þingsins í Stuttgart í stuttu myndbandi, í dagskrá um óréttmætar skuldir á föstudaginn.  Í kveðjunni kom Karl biskup inn á mannlegu hliðina á fjárhagshruninu á Íslandi árið 2008 og samfélagslega ábyrgð kirkjunnar.

Munib Younan er nýr forseti LH

LWF2010 - Munib Younan, verðandi forseti Lútherska heimssambandsins

Munib Younan sem er biskup Lúthersku kirkjunnar í Jórdaníu og Landinu helga var kosinn forseti LH á þinginu í Stuttgart í morgun. Munib biskup er þekktur sem einlægur baráttumaður fyrir friði og samtali trúarbragðanna í löndunum við botn Miðjarðarhafs.

Íslenskur djákni í stjórn LH

LWF2010 - Magnea Sverrisdóttir, djákni, og sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir

Magnea Sverrisdóttir djákni er nýr fulltrúi þjóðkirkjunnar í stjórn LH. Í stjórninni, sem var kosin á þinginu í Stuttgart í dag, sitja 49 fulltrúar frá öllum heimsálfum. Nýja stjórnin situr fram að næsta heimþingi LH og er æðsta yfirvald LH á milli heimsþinganna.

Kirkjan er samfélag jafnréttis og öryggis

LWF2010 - Frá kvennafundi

Helmingur þátttakenda á heimsþinginu í Stuttgart eru konur. Í þeirra hópi eru biskupar, prestar, djáknar og óvígðir leiðtogar frá öllum heimshornum. Þessi myndarlegi hópur safnaðist saman við upphaf þinghaldsins í morgun og gekk syngjandi inn í salinn, þar sem fram fór kynning og umræða um þau málefni sem kvennafundur LH leggur fyrir þingið.

22. júlí: Árni Svanur um iðrunarmessuna

LWF2010 - Merki heimsþingsins

Í síðara videobloggi fimmtudagsins ræðir Árni Svanur um Iðrunarmessu sem haldin var á fimmtudagkvöldi. Þetta var tækifæri til að horfast í augu við ljóta atburði í sögu lúthersku kirkjunnar, til að gera upp við fortíðina og íhuga sjálfsmynd. Athöfnin var bæði falleg og áhrifamikil og þátttakendur voru ekki samir á eftir.