Sjónvarp kirkjunnar

Í sjónvarpi kirkjunnar er að finna stutt myndbönd og viðtöl. Sjónvarpið er að finna á YouTube svæði kirkjunnar á: youtube.com/user/thjodkirkjan.

Réttlæti, umhyggja og reisn í hnattvæddu markaðssamfélagi

Sjónvarp kirkjunnar - Martin Junge

Þegar við höfum skoðað skuldavanda þjóða hefur það alla jafna tengst þjóðum á suðurhveli jarðar. Það setur málin í ákveðið pólitískt samhengi, segir Peter N. Prove, sem er í forsvari fyrir mannréttindastarf Lútherska heimssambandsins. Hann bætir við: Á Íslandi er um að ræða skuldavanda þjóða á norðurhveli jarðar.

Ísland sem fyrirmynd og Ísland sem lexía

Sjónvarp kirkjunnar - Peter Prove

Við höfum séð gjá myndast milli efnahagskerfis og samfélags manna í heiminum, segir Peter N. Prove, sem er í forsvari fyrir mannréttindastarf Lútherska heimssambandsins. Þetta hefur haft djúpstæð áhrif. Vandinn hér á Íslandi er dæmi um þetta og hér á landi getur að líta afleiðingar þessarar gjár, afleiðingar ábyrgðarleysis og skorts á siðferðisramma.

Ólögmætar skuldir og lífið í hnattvæddu samfélagi

Sjónvarp kirkjunnar - Martin Junge

Við höfum mikla reynslu í Lh af því að fást við fjárhagsleg áföll og krísur, segir Martin Junge, verðandi framkvæmdastjóri Lútherska heimssambandsins. Hann bætir við: Við höfum fjallað mikið um ólögmætar skuldir og viljum deila þeirri reynslu með Íslendingum og íslensku kirkjunni.

Aftur á æskuslóðirnar

Sjónvarp kirkjunnar - Aftur á æskuslóðirnar

Eftir rúman mánuð tekur sr. Hildur Eir Bolladóttir til starfa við Akureyrarkirkju. Hún er að snúa aftur á æskuslóðirnar og er spennt að fara norður og vinna með Norðlendingum að því að byggja upp kirkju og kristni.

Margir messuþjónar

Sjónvarp kirkjunnar - Margir messuþjónar

Þátttakan er það sem mest hefur komið á óvart í messuhópastarfi í Reykjavíkurprófastsdæmum. Á messuþjónahátíð voru fulltrúar 17 safnaða. Þau hafa fengið að taka þátt í guðsþjónustunni með nýjum hætti, segir Jón Dalbú Hróbjartsson og bætir við: Það er stórkostlegur vitnisburður.

Súpa, brauð og kærleikur

Sjónvarp kirkjunnar - Súpa, brauð og kærleikur

„Svo er löngu tímabært að þjóðkirkjan komi upp súpueldhúsi í miðbænum, í Breiðholti og í öllum úthverfum [...] Við eigum öll að vinna saman í kærleiksríkum anda, heyrðist kallað á Laugaveginum við Kirkjuhúsið í gær. 

Fylkismessa og biskupsheimsókn í Árbæjarsöfnuð

Fylkismessa 2010

Það var bjartur og fallegur dagur sem tók á móti kirkjugestum í Árbænum sunnudaginn 5. maí.   Ráðandi litur kirkjugesta var appelsínugulur. Ástæðan var árleg Fylkismessa sem haldin hefur verið óslitið í Árbæjarkirkju í 14 ár.  Á þessa messu mæta ungir sem eldri iðkendur íþróttafélagsins Fylkis.

Gegn fátækt og félagslegri einangrun

Hjálparstarf kirkjunnar - jólaúthlutun 2008

Síðasta vika var sérstaklega helguð svonefndu Evrópuári gegn fátækt og félagslegri einangrun, og eru Hjálparstarf kirkjunnar og kærleiksþjónustusvið Biskupsstofu aðilar þar að. Stofnanir samfélagsins og félagasamtök eru hvött til að vekja athygli á fátækt og félagslegri einangrun og taka höndum saman í baráttunni gegn því böli. 

Sálmabók verður til

Sjónvarp kirkjunnar - Sálmabók verður til

Hvers vegna þurfum við nýja Sálmabók? Hvað gerir sálm að Sálmabókarsálmi og hvaða sálmar verða í nýrri Sálmabók? Sálmabókarnefnd fundaði í Skálholti í maíbyrjun. Sjónvarp kirkjunnar fylgdist með fundinum og fékk innsýn í starf nefndarinnar.

Ferðamannastaður og menningarsetur

Sjónvarp kirkjunnar - Ferðamannastaður og menningarsetur

Skálholt er vinsæll viðkomustaður ferðamanna á Íslandi. „Hingað koma á ári um það bil 260 þúsund gestir,“ segir Kristinn Ólason í viðtali við vefsjónvarp kirkjunnar. Staðurinn er einn af þeim helstu sem Íslendingar sækja til að kynna sér sögu og menningu þjóðarinnar.