Saman sýnd í kirkjubíói í Langholtskirkju

Saman - fjölskylda í bíl - myndrammi úr kvikmynd

Norska kvikmyndin Sammen sem hlaut kvikmyndaverðlaun kirkjunnar haustið 2009 verður sýnd í kirkjubíói í Langholtskirkju fimmtudagskvöldið 4. febrúar. Sammen fjallar um viðbrögð feðga við missi og um kærleikann sem heldur í okkur lífinu. Sýningin hefst klukkan 20 og er öllum opin. 

Um myndina

Norska kvikmyndin Saman segir frá hjónum sem ætla í ferðalag ásamt syni sínum og hlakka mikið til. Á leiðinni lenda þau í slysi sem umturnar lífi þeirra. Þetta er saga um ferðalag föður og sonar um lendur sorgarinnar eftir að þeir missa manneskjuna sem þeir báðir elskuðu, hvernig þeir takast á við hversdagsleikann sem er þó allur annar en hann var. Móðirin hélt öllu gangandi og þeim finnst þeir þurfa að byrja alveg upp á nýtt. Að elda mat verður jafnvel að meiri háttar máli. Þeir átta sig á því að þeir hafa ekki eytt miklum tíma saman og eiga erfitt með samskipti. Á endanum er það föðurnum ofraun að takast á við fráfall eiginkonu sinnar og hann fer með son sinn til félagsmálayfirvalda. Drengurinn er settur á munaðarleysingjahæli. Faðirinn einangrast en drengurinn gefst ekki upp og reynir allt til þess að þeir geti sameinast aftur.

Í umsögn dómnefndar kirkjunnar um myndina segir:

„Feðgar bregðast við erfiðum missi á ólíkan hátt. Saman býður áhorfandanum í ferðalag um hrjóstrugar víðáttur sorgarinnar og dregur upp mynd af heilbrigðum og óheilbrigðum viðbrögðum við áfalli. Hún fjallar á trúverðugan hátt um það hvernig hið daglega líf getur orðið syrgjandanum ofviða.

Saman er saga um sektarkennd og vonleysi. Hún fjallar um kærleikann sem heldur í okkur lífinu þegar öll sund virðast lokuð. Þrjú faðmlög marka veginn frá sorg til sáttar, frá vonleysi til vonar. Saman er raunsæ kvikmynd sem miðlar von og minnir á að lítil snerting getur gert kraftaverk.“

Í dómnefnd voru: Sr. Árni Svanur Daníelsson, sr. Guðrún Karlsdóttir og sr. Íris Kristjánsdóttir.

Leikstjóri myndarinnar, Matias Armand Jordal, er fæddur 1970. Hann lærði við Dramatiska Institutet í Stokkhólmi. Undanfarin átta ár hefur hann leikstýrt auglýsingum og stuttmyndum. Hann hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir kvikmyndir sínar. Saman er fyrsta kvikmynd hans í fullri lengd.