„Fyrirætlanir til heilla“ – Æskulýðsmót í Stóru-Tjarnaskóla

Frá æskulýðsmóti á Norðurlandi

Yfir 140 unglingar úr æskulýðsfélögum kirkjunnar af Norður- og Austurlandi komu saman á fjörugu æskulýðsmóti í Stóru-Tjarnaskóla í Ljósavatnsskarði helgina 29.-31. janúar sl. ásamt leiðtogum sínum. 

Yfirskrift mótsins var fengin úr Jeremía 29.11: „Fyrirætlanir til heilla,“ og vísaði í þá fræðslu sem þátttakendur fengu. Þar var áhersla lögð á mannréttindi, að allir ættu rétt á sömu tækifærum og að Guð hefði góðar fyrirætlanir með líf allra. Pétur Björgvin Þorsteinsson, djákni í Glerárkirkju, hafði umsjón með fræðslunni og studdist m.a. við nýútgefna handbók í mannréttindafræðslu fyrir ungt fólk, Kompás.

Sr. Bolli Pétur Bollason, sóknarprestur Laufásprestakalls, bar ásamt Pétri Björgvini hitann og þungann af skipulagningu mótsins. Dagskráin var fjölbreytt en auk fræðslu og helgistunda má nefna kvöldvöku, sundlaugarpartý og diskótek og ferð til Akureyrar þar sem þátttakendur komust á skauta eða í bíó og tóku þátt í hæfileikakeppninni HÆNU sem er árviss viðburður í kirkjustarfi ungs fólks á Norðausturhorninu. Mótinu lauk með æskulýðsguðsþjónustu í Þorgeirskirkju við Ljósavatn og höfðu allir mótsgestir undirbúið sitt framlag til guðsþjónustunnar í hópavinnu, með söng, ritningarlestri, bænagjörð, leiklist, predikun og skreytingum.

Ekki er annað hægt að segja en að mótið hafi farið vel fram, þátttakendur að langmestu leyti verið til fyrirmyndar og komið heim kátir á sunnudagskvöldinu.