Námskeið um bænina

Breiðholtskirkja

Þriðjudaginn 9.febrúar  kl. 18.00  verður haldið í Safnaðarheimili Breiðholtskirkju síðdegisnámskeið undir yfirskriftinni Bænin - farvegur blessunar í lífi og starfi.
Fjallað verður um bænin bæði út frá Biblíunni og kristinni trúarhefð.  Kynntar verða ýmsar aðferðir bænalífsins og hvernig við getum eignast innihaldsríkt bænalíf í önnum og amstri dagsins.  Einnig verður fjallað um hvernig bænin og bænalíf tengist starfi okkar í kirkjunni.  Umsjón með námskeiðinu hefur séra Bryndís Malla Elídóttir héraðsprestur í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra.

Námskeiðið  hefst það kl. 18.00 og stendur til 21.00.  Skráning fer fram með því að senda póst á netfangið kristin.arnardottir@kirkjan.is eða í síma 528 4000

Námskeiðið er í röð námskeiða sem haldin eru með reglulegu millibili á vegum Reykjavíkurprófastsdæma og Fræðslusviðs Biskupsstofu, Starfs- og leikmannaskólans undir heitinu Að starfa í kirkjunni.  Þess má geta að í apríl verður síðan boðið upp á samskonar námskeið um Biblíuna.  Umsjón með því námskeiði hefur séra María Ágústdóttir héraðsprestur.