Garðasókn

 

Hjónabandsmessa 27. júní kl. 20 í Garðakirkju

Í tilefni af því að ein hjúskaparlög taka gildi á Íslandi sunnudaginn 27. júní ætla prestahjónin Bjarni Karlsson og Jóna Hrönn Bolladóttir að bjóða upp á hjónabandsmessu Garðakirkju á Garðaholti sem er ein vinsælasta brúðkaupskirkja á landinu.

Þetta er sameiginleg kvöldmessa Garða- og Laugarnesprestakalls sem hefst kl. 20.
Boðið verður upp á akstur frá Vídalínskirkju í Garðabæ og frá Laugarneskirkju kl. 19:30.
Hjónin Jóna Hrönn og Bjarni ætla að predika saman um gildi og gæði hjónabandsins og hjónin Kirstín Erna Blöndal og Örn Arnarson kenna brúðkaupssálma og syngja ástarsöngva ásamt Jóhanni Baldvinssyni organista.
Einnig gefst fólki tækifæri til að endurnýja hjúskaparheitið og ganga til altaris.

Það er undursamlega falleg sumarkvöldin á Garðaholtinu. Garðakirkja er þar í einstakri umgjörð sveitarinnar með fuglasöng og hestum í túni. Hjónabandið er ein mikilvægast stofnun samfélagsins og við eigum að hefja það upp til vegs og virðingar og leggja okkur fram um að rækta það.

Allir velkomnir!

Jóhann Baldvinsson, 23/6 2010 kl. 17.38

     

    Garðasókn, Kirkjulundi, 210 Garðabæ. Sími 565 6380 , fax 565 6853 · Kerfi RSS