Kór Vídalínskirkju byrjar vetrarstarfið
Kór Vídalínskirkju verður með fyrstu æfingu vetrarins miðvikudagskvöldið 1. september kl. 19.30.
Framundan er heilmikið fjölbreytt og spennandi starf.
Í Kór Vídalínskirkju eru um 30 kórfélagar sem skipast á að syngja í messum í Vídalíns- og Garðakirkju og Holtsbúð, en kórinn syngur einnig á aðventukvöldi og heldur sjálfstæða tónleika. Æfingar eru hvert miðvikudagskvöld frá 19.30-21.30.
Hægt er að bæta nokkrum röddum við í kórinn, sérstaklega karlaröddum, og æskilegt að viðkomandi hafi reynslu af kórsöng og/eða tónlistarþekkingu. Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband við kórstjórann, Jóhann Baldvinsson í síma 899 9508 eða senda tölvupóst á johannba@gardasokn.is.
Nú er kominn grunnur að starfi kórsins í vetur. Fyrir utan hefðbundnar messur og aðrar athafnir eru fyrirhugaðar æfingabúðir í september og tónleikar með Kór Víðistaðakirkju, einsöngvurum og hljóðfæraleikurum í október, þar sem flutt verður Requiem og Cantique de Jean Racine eftir Fauré og þrjú íslensk verk, Ég byrja reisu mín, Haustvísur til Maríu, og Heyr þú oss himnum á.
Í desember verður síðan aðventukvöld og jólatónleikar, í febrúar 2011 tekur kórinn þátt í Kórdegi Kjalarnessprófastsdæmis og í vor er hugmyndin að fara í utanlandsferð með efnisskrá tónleikanna frá því í október.
Sem fyrr segir er því fjölbreytt og spennandi kórstarf í Kór Vídalínskirkju!
Jóhann Baldvinsson, 27/8 2010 kl. 13.56