Hvenær hefst safnaðarstarfið í Garðasókn 2012
Fyrstu dagana í janúar förum við rólega af stað í safnaðarstarfi Garðasóknar enda fylgir jólahátíðinni alltaf miklar annir í kirkjunni. Hér er hægt að sjá hvernær ákveðnir liðir í safnaðarstarfinu byrja. Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
Barnakórinn hefst fimmtudaginn 5. janúar kl. 16:30.
Sunnudagaskólinn fer af stað 8. janúar kl. 11 í Vídalínskirkju með brúðubílnum. Þar mun Helga Steffensen stýra ásamt fleirum brúðunum í leikritinu um selinn Snorra.
Æskulýðsfélagið fer af stað mánudaginn 9. janúar kl. 20:00.
Kyrrðarstundir í hádegi hefjast þriðjudaginn 10. janúar kl. 12:10.
Opna húsið hefst þriðjudaginn 10. janúar kl. 13:00.
Bænahópur karla fer af stað þriðjudaginn 10. janúar kl. 19 í safnaðarheimilinu.
Gospelkórinn hefst þriðjudaginn 10. janúar kl. 20:00.
Foreldramorgnar hefjast miðvikudaginn 11. janúar kl. 10 í safnaðarheimilinu.
Kór Vídalínskirkju er með fyrstu æfingu á nýju ári miðvikudaginn 11. janúar kl. 19.30.
Joga nidra hefst þriðjudaginn 17. janúar kl. 17:30 í Vídalínskirkju.
Fermingarfræðslan hefst miðvikudaginn 18. janúar kl. 15 og 16 í Vídalínskirkju.
Bænahópur kvenna fer af stað þriðjudaginn 24. janúar kl. 16:30 í Vídalínskirkju.
Jóna Hrönn Bolladóttir, 1/1 2012 kl. 17.15