Messa og gospelguðþjónusta 29. janúar
Sunnudaginn 29. janúar verður hefðbundinn messa kl.11 og gospelguðsþjónusta kl.17
Í messu kl.11 mun Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir predika og þjóna fyrir altari. Kór Vídalínskirkju syngur undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar organista. Barn borið til skírnar. Sunnudagaskóli á sama tíma undir stjórn Erlu Bjarkar Káradóttur. Molasopi í safnaðarheimilinu á eftir.
Kl. 17 Gospelguðsþjónusta. Gospelkór Jóns Vídalíns syngur undir stjórn Ingvars Alfreðssonar. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir predikar og þjónar fyrir altari. Helga Kolbeinsdóttir guðfræðinemi þjónar einnig í guðsþjónustunni en hún er nú í starfsþjálfun í Garðasókn.
Jóna Hrönn Bolladóttir, 26/1 2012 kl. 11.43