Sunnudagskvöldið 25.mars kl.20:30 verður hjóna-og sambúðarmessa í Garðakirkju. Þetta eru uppbyggjandi og endurnærandi kvöldmessur þar sem hlúð er að sambúð fólks með ráðgjöf, tónlist og fyrirbæn. Í þessari messu mun Jóna Ingibjörg Jónsdóttir hjúkrunar-og kynfræðingur flytja erindi sem ber yfirskriftina Hvað er gott kynlíf. Aðalheiður Þorsteinsdóttir, Tómas R.Einarsson og Anna Sigga Helgadóttir leiða lofgjörðina, en prestarnir < ?xml:namespace prefix = st1 ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:smarttags" />Jóna Hrönn Bolladóttir og Friðrik J. Hjartar þjóna fyrir altari. Allt fólk er velkomið, óháð aldri og kynhneigð. Sjá www.gardasokn.is< ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Jóna Hrönn Bolladóttir, 21/3 2007
Sunnudaginn 25.mars eru fermingar í Garðaprestakalli. Í tilefni af því verður sunnudagaskóli Garðasóknar í Garðakirkju. Farið verður með rútu frá Vídalínskirkju kl.11:00 yfir í Garðakirkju. Sunnudagaskólinn er í umsjá Ármanns H.Gunnarssonar æskulýðsfulltrúa. Boðið verður upp á hressingu að stundinni lokinni. Sunnudagaskólinn í Bessastaðasókn fer í óvissuferð þennan dag. Farið verður með rútu frá íþróttamiðstöðinni á Álftanesinu kl.11:00, en það er komið aftur heim kl.12:00. Sunnudagaskólinn er í umsjá Kristjönu Thorarensen leikskólakennara. Allir velkomnir
Jóna Hrönn Bolladóttir, 21/3 2007
Við messu 18. mars var þess minnst að sr. Bragi Friðriksson varð áttræður nýlega.
Fjöldi manns sótti messuna og aðalsafnaðarfundinn í kjölfarið og heiðraði sr. Braga með nærveru sinni
Lesa áfram …
Halldór S. Magnússon, 20/3 2007
Aðalsafnaðarfundur Garðasóknar var haldinn 18. mars.
Þrír fulltrúar létu af stjórnarstörfum eftir langt og farælt starf
Lesa áfram …
Halldór S. Magnússon, 20/3 2007
Sunnudagurinn 18.mars er stór dagur í Garðasókn. Í messu kl.11:00 í Vídalínskirkju verður sr.Bragi Friðriksson fyrrverandi sóknarprestur og heiðursborgari Garðabæjar heiðraður í tilefni af 80 ára afmæli hans sem var 15. mars. Formaður sóknarnefndar og bæjarstjóri Garðabæjar munu ávarpa sr. Braga í upphafi messunnar. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir og Nanna Guðrún Zöega djákni þjóna að helgihaldinu ásamt kór Vídalínskirkju undir stjórn Magnúsar Ragnarssonar organista.
Eftir messu munu Lionsklúbbarnir í Garðabæ reiða fram veitingar. Að því loknu verður aðalsafnaðarfundur í safnaðarheimilinu. Þar verður farið yfir reikninga safnaðarins og einnig er kosning í sóknarnefnd. Síðast en ekki síst er farið yfir framsækið og gott safnaðarstarf í Garðasókn árið 2006. Allir eru velkomnir til helgihaldsins og uppskeruhátíðar safnaðarins.
Halldór S. Magnússon, 15/3 2007
Aðalsafnaðarfundur Garðasóknar verður haldinn sunnudaginn 18. mars kl. 12:45
Lesa áfram …
Halldór S. Magnússon, 12/3 2007
Sunnudaginn 11. mars eru eldri borgarar í aðalhlutverki í messunni í Vídalínskirkju.
Ólafur G. Einarsson fv. ráðherra og bæjarstjóri í Garðabæ flytur prédikun dagsins, Garðakórinn, kór eldri borgara í Garðabæ, annast tónlistina og eldri borgarar lesa ritningarlestra og bænir.
Allir velkomnir - engin aldurstakmörk!
Lesa áfram …
Friðrik Hjartar, 8/3 2007
Sunnudaginn 4. mars, sem er æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar, verður mikill gleðidagur í Garðasókn.
Kl. 11 verður fjölskylduguðsþjónusta í Vídalínskirkju þar sem m.a. hljómsveitin Exodus kemur fram í fyrsta skipti.
Kl. 20 verður svo gospelmessa í Vídalínskirkju, þar sem gospelkór Jóns Vídalíns leiðir lofgjörðina undir stjórn Þóru Gísladóttur.
Foreldrar og fermingarbörn eru hvött til þáttöku.
Allir velkomnir!
Lesa áfram …
Jóna Hrönn Bolladóttir, 1/3 2007
Messa verður í Garðakirkju sunnudaginn 4. mars kl. 14. Barn borið til skírnar.
Rúta fer frá Vídalínskirkju kl. 13.30 og frá Hleinum kl. 13.40.
Kirkjan er öllum opin - verið velkomin!
Lesa áfram …
Friðrik Hjartar, 1/3 2007
Jóna Hrönn talar á málfundi ungra sjálfstæðismanna í Tónlistarskólanum fimmtudaginn 1. mars kl. 20
Lesa áfram …
Halldór S. Magnússon, 28/2 2007