Næstkomandi sunnudag, 13. nóvember, verður messa í Vídalínskirkju kl. 11.00.
Í tilefni Kristniboðsdagsins mun Kusse Kushosho frá Konsó prédika.
Sunnudagaskólinn verður með fyrri hluta messunnar, en fer síðan til sinna starfa undir umsjón Rannveigar og Hjördísar.
Lesa áfram …
Jóhann Baldvinsson, 10/11 2005
Sunnudaginn 6. nóvember var fjölskylduguðsþjónusta í Vídalínskirkju kl. 11 og messa í Garðakirkju kl. 14. Á báðum stöðum var mjög góð kirkjusókn og munu samtals um 430 manns hafa komið í þessar tvær athafnir. Er mjög ánægjulegt þegar kirkjusókn er þetta góð.
Lesa áfram …
Jóhann Baldvinsson, 7/11 2005
Fjölskylduguðsþjónusta verður í Vídalínskirkju nk. sunnudag 6. nóvember kl. 11:00.
Sunnudagaskólinn tekur þátt í athöfninni. Barnakórar Hofsstaðaskóla syngja.
Lesa áfram …
Jóhann Baldvinsson, 3/11 2005
Sameiginleg messa Garða- og Bessastaðasóknar verður í Garðakirkju sunnudaginn 6. nóvember kl. 14:00. Látinna verður sérstaklega minnst í messunni. Kór Vídalínskirkju og kór Bessastaðasóknar (Álftaneskórinn) syngja báðir við athöfnina.
Lesa áfram …
Jóhann Baldvinsson, 3/11 2005
Sunnudagaskólabörnin taka þátt í upphafi guðsþjónustunnar en fara síðan til sinna starfa og njóta leiðsagnar Rannveigar og Hjördísar.
Kór Vídalínskirkju flytjur tvö kórverk.
Að lokinni guðsþjónustu býður sóknarnefnd og Lionsfélagar upp á súpu í safnaðarheimilinu. Við það tækifæri mun Kvennakór Garðabæjar syngja nokkur lög undir stjórn Ingibjargar Guðjónsdóttur.
Allir velkomnir.
Lesa áfram …
Jóhann Baldvinsson, 26/10 2005
Messa verður í Vídalínskirkju sunnudaginn 23. október kl. 11.
Sunnudagaskólinn mætir á sama tíma.
Hildigunnur Halldórsdóttir syngur einsöng.
Molasopi eftir guðsþjónustuna í safnaðarheimilinu.
Lesa áfram …
Friðrik Hjartar, 20/10 2005
Guðsþjónusta verður í Vídalínskirkju nk. sunnudag 16. október kl. 11.00. Sunnudagaskólinn mætir á sama tíma en fer síðan til starfa með leiðtogum í hliðarsal.
Molasopi eftir guðsþjónustuna í safnaðarheimilinu
Lesa áfram …
Friðrik Hjartar, 13/10 2005
Helgihald er hvern sunnudag kl. 11 í Vídalínskirkju og í Garðakirkju að jafnaði fyrsta sunnudag í hverjum mánuði kl. 14. Að loknu helgihaldi í Vídalínskirkju er boðið upp á veitingar, oftast kaffi eða aðra drykki en u.þ.b. einu sinni í hverjum mánuði er borinn fram léttur málsverður í umsjón Lionsmanna í Garðabæ.
Hér er yfirlit yfir helgihald í Garðasókn frá 16. október til 27. nóvember.
Lesa áfram …
Jóhann Baldvinsson, 12/10 2005
Umsækjendur eru:
sr. Birgir Ásgeirsson, sr. Eiríkur Jóhannsson, sr. Hans Markús Hafsteinsson, sr. Jóna Hrönn Bolladóttir, sr. Kjartan Jónsson, sr. Yrsa Þórðardóttir og sr. Þórhallur Heimisson
Lesa áfram …
Jóhann Baldvinsson, 12/10 2005
Sjálfstyrkingarnámskeið kvenna verður haldið í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju, mánudagskvöldin 17. og 24. október nk.
Námskeiðið er haldið í samráði við Leikmannaskóla Þjóðkirkjunnar en umsjón með því hefur sr. Petrína Mjöll Jóhannsdóttir.
Skráning á gardasokn@gardasokn.is eða í síma 565 6380 (milli kl. 10 og 16) til 14. október.
Lesa áfram …
Jóhann Baldvinsson, 10/10 2005