Safnaðarstarf
Börn og unglingar
Sunnudagaskólinn
Sunnudagaskólinn starfar í Vídalínskirkju alla sunnudaga kl. 11 yfir vetrarmánuðina.
Í skólanum starfa tvær deildir, yngri deild fyrir börn upp að 5 ára aldri og eldri deild fyrir börn 6 ára og eldri. Sunnudagaskólinn er fyrir alla krakka sem hafa gaman af því að syngja, hlusta á sögur og fara í leiki.
Æskulýðsstarf
Æskulýðsfélag Garðasóknar heldur fundi yfir vetrarmánuðina öll mánudagskvöld og miðvikudagskvöld.
Á mánudögum er starf fyrir unglinga en á miðvikudögum er leiklist.
Í æskulýðsstarfinu er mikið líf og fjör, leikir, ferðalög og bíóferðir eru dæmi um
atburði sem unglingarnir í æskulýðsfélaginu stunda. Allir unglingar eru svo
sannarlega velkomnir að taka þátt í æskulýðsstarfinu. Í vetur ætlum við svo að tengjast
Hjálparstarfi kirkjunnar og erum með verkefni sem við köllum: “Lítum eftir hvert öðru” og það er hjálparstarfsverkefni tengt innannlandsaðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar og fyrir munaðarlaus börn í Úganda.
Fermingar
Skráning
til fermingar hefst í maí á auglýstum tíma.
Foreldrar velja þá athöfn sem hentar. Takmarkaður fjöldi er skráður í hverja athöfn.
Ferðalag
fermingarbarnanna til sólarhringsdvalar í Vatnaskógi hefur oftast markað upphaf fermingarfræðslunnar. Ferðalag þetta er mikilvægt til að kynnast börnunum við leik og störf í umhverfi Vatnaskógar.
Fræðslutímar,
“spurningar”, eru vikulega í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli. Helgistund er í tengslum við hvern tíma í kirkjunni. Börnin lesa Lúkasarguðsspjall.
Messusókn
er hluti af undirbúningnum. Ætlast er til að börnin mæti í 10 guðsþjónustur yfir veturinn. Bókin Kirkjulykill er leiðarvísir um helgihaldið. Þar eru 10 verkefni sem fylla þarf út og skerpa athygli barnanna að liðum messunnar.
Fermingarathöfnin
er æfð sérstaklega í vikunni fyrir athöfn, en hver fermingarmessa tekur um eina klukkustund. Fjöldi fermingarbarna í hverri athöfn er takmarkaður til að gott pláss sé fyrir þá sem vilja njóta stundarinnar með börnunum.
Fermingar vorið 2011:
Laugardagur 2. apríl 2011
Kl. 10:30 - Ferming í Vídalínskirkju
Kl. 13:00 - Ferming í Garðakirkju
Sunnudagur 3. apríl 2011
Kl. 13:00 - Ferming í Garðakirkju
Laugardagur 9. apríl 2011
Kl. 10:30 - Ferming í Vídalínskirkju
Kl. 13:00 - Ferming í Garðakirkju
Sunnudagur 10. apríl 2011
Kl. 13:00 - Ferming í Garðakirkju
Pálmasunnudagur 17. apríl 2011
Kl. 13:00 - ferming í Vídalínskirkju
Fræðslustarf
Þessi hluti er í vinnslu
—————-
Opið hús
OPIÐ HÚS fyrir eldriborgara og alla þá sem þangað vilja koma.
Opið hús er í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju, hvern þriðjudag kl. 13:00 til 16:00.
Við spilum vist og bridge, röbbum saman og njótum þess að eiga samfélag hvert við annað. Sauma- og prjónahorn er einnig til staðar.
Kaffi og meðlæti kl. 14:30 á lágmarks verði.
Akstur fyrir þá sem vilja frá Hleinum og Jónshúsi. Upplýsingar gefur Þorlákur síma: 869-1380.
Allir velkomnir.
Hér eru myndir úr starfi eldri borgara.
Foreldamorgnar
Foreldramorgnar eru í skólastofu safnaðarheimilisins, hvern miðvikudagsmorgun kl. 10 :30 til 12:00. Fyrirlestur mánaðarlega.
Gott tækifæri fyrir foreldra að hittast með börn sín og kynnast öðrum foreldrum með börn á svipuðu reki.
Við röbbum saman, föndrum, púslum og eigum góða stund saman. Við endum stundirnar með því að syngja með börnunum.
Allir velkomnir, pabbar og mömmur, afar og ömmur.
Alltaf heitt á könnuni.
Myndir úr starfi foreldramorgna er að finna hér.