Fermingarstarf
Skráning
til fermingar hefst í byrjun maí ár hvert.
Foreldrar velja þá athöfn sem hentar. Takmarkaður fjöldi er skráður í hverja athöfn.
Ferðalag
fermingarbarnanna til sólarhringsdvalar í Vatnaskógi hefur oftast markað upphaf fermingarfræðslunnar. Ferðalag þetta er mikilvægt til að kynnast börnunum við leik og störf í umhverfi Vatnaskógar.
Fræðslutímar,
“spurningar”, eru vikulega í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli. Helgistund er í tengslum við hvern tíma í kirkjunni. Börnin lesa Lúkasarguðsspjall.
Messusókn
er hluti af undirbúningnum. Ætlast er til að börnin mæti í 10 guðsþjónustur yfir veturinn. bókin Kirkjulykill er leiðarvísir um helgihaldið. Þar eru 10 verkefni sem fylla þarf út og skerpa athygli barnanna að liðum messunnar.
Fermingarathöfnin
er æfð sérstaklega í vikunni fyrir athöfn, en hver fermingarmessa tekur um eina klukkustund. Fjöldi fermingarbarna í hverri athöfn er takmarkaður til að gott pláss sé fyrir þá sem vilja njóta stundarinnar með börnunum.
Ársafmæli fermingarinnar
Í Garðaprestakalli er fermingarbörnunum og foreldrum þeirra boðið til “ársafmælis fermingarinnar” vorið eftir ferminguna. Þetta er gert til að minna á að börnin eru ekki að útskrifast úr kirkjunni og til að endurnýja góð kynni. Stutt dagskrá og veitingar er uppistaða þessarar ánægjulegu stundar.