Gospelkór Jóns Vídalín
Gospelkór var stofnaður haustið 2006 fyrir ungt fólk á aldrinum 16-30 ára. Hér er á ferðinni samstarfsverkefni Garðaprestakalls og Fjölbrautarskólans í Garðabæ. Starfið hefur tekist með miklum ágætum, en kórstarfið er valfag í FG og þau sem taka þátt fá tvær einingar sem nýtast öllum sem eru í framhaldsskólanámi.
Kórinn kemur fram einu sinni í mánuði á kvöldvökum í Vídalínskirkju þar sem hann syngur fyrir söfnuðinn og leiðir almennan safnaðarsöng. Einnig heldur kórinn tónleika í desember og að vori í hátíðasal Fjölbrautaskólans í Garðabæ ásamt því sem kórinn kemur fram við útskrift í FG.
Stjórnandi kórsins er Ingvar Alfreðsson píanóleikari og eru æfingar alla þriðjudaga í Vídalínskirkju kl. 20:00.
Þátttaka hefur verið mjög góð af hálfu stúlknanna en það má bæta við fleiri piltum, og er skorað á bæði kyn að ganga til liðs við þetta skapandi og skemmtilega verkefni. Þess má geta að Umhverfissjóður hefur styrkt þetta verkefni.
Hér erum myndir af Gospelkórnum.