Grafarvogskirkja

 

Hátíðarguðsþjónusta á hvítasunnudag kl. 11:00 í Grafarvogkirkju

Séra Guðrún Karls Helgudóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Kór kirkjunnar syngur hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar undir stjórn Hákons Leifssonar organista. Einsöngur: Gissur Páll Gissurarson.

Velkomin í kirkjukaffi á eftir!

Guðrún Karlsdóttir, 22/5 2012

Siglfirðingamessa sunnudaginn 20. maí, kl. 14:00

Sunnudaginn 20. maí kl. 14:00 verður hin árlega átthagamessa Siglfirðingafélagsins haldin í Grafarvogskirkju.  Hátíðartón séra Bjarna Þorsteinssonar flutt.  Kór Grafarvogskirkju leiðir safnaðarsöng.  Stjórnandi er Hákon Leifsson.  Þorvaldur Halldórsson syngur í messunni og í kaffisamsætinu eftir messu.  Gunnar Rafn Sigurbjörnsson fyrrverandi skólastjóri og bæjarstjórnarmaður á Siglufirði flytur hugleiðingu.  Séra Kjartan Örn Sigurbjörnsson sjúkrahúsprestur þjónar ásamt fyrrverandi sóknarpresti á Siglufirði séra Vigfúsi Þór Árnasyni.  Siglfirðingakaffi á vegum Siglfirðingafélagsins eftir messu.  Verið öll hjartanlega velkomin!

Lena Rós Matthíasdóttir, 19/5 2012

Uppstigningardagur 17. maí - Dagur eldri borgara

Hátíðarguðsþjónusta kl.14.00.
Herra Karl Sigurbjörnsson biskup prédikar.
Séra Vigfús Þór Árnason þjónar fyrir altari ásamt
séra Lenu Rós Matthíasdóttur og séra Sigurði Grétari Helgasyni.
Kór kirkjunnar syngur ásamt Karlakór Grafarvogs.
Stjórnendur: Hákon Leifsson og Íris Erlingsdóttir.
Organisti: Hákon Leifsson.

Að lokinni messu er kaffi og veitingar í boði sóknarnefndar og
Safnaðarfélags Grafarvogskirkju.

Opnuð verður handavinnusýning á listmunum sem eldri borgara hafa föndrað í vetur.

Erna Reynisdóttir, 16/5 2012

Uppskeruhátið - Fjölskyldustund - Grill - Hoppukastali

Sunnudaginn 13. maí kl. 11:00 verður uppskeruhátíðin okkar í Grafarvogskirkju.  Að sjálfsögðu verður gott veður þangað til hátíðinni lýkur.  Við ætlum að hafa gaman í fjölskyldustund í kirkjunni kl. 11 með brúðuleik og skemmtilegum söngvum.  Eftir stundina verða grillaðar pylsur og hoppukastalafjör.

Aðalsafnaðarfundur verður haldinn eftir matinn, allir velkomnir!

Lena Rós Matthíasdóttir, 11/5 2012

7. maí kl. 19.30 - Vorferð í Hvalfjörðinn

Mánudaginn 7. maí verður farið í hina árlegu vorferð Safnaðarfélagsins.
Komið verður við í kirkju séra Hallgríms Péturssonar í Saurbæ í Hvalfjarðarsveit
þar sem séra Kirstin Jens Sigþórsson sóknarprestur tekur á móti okkur.
Svo er ferðinni haldið áfram að Félagsheimilinu Hlöðum
þar sem Gaui litli vinnur að því að koma upp Hernámssýningu
og við fáum að svipast þar um þó að hún hafi ekki verið formlega opnuð.
Magnús Þór Hafsteinsson flytur erindi í máli og myndum um efni bókar sinnar
„Dauðinn í Dumbshafi - Íshafsskipalestirnar frá Hvalfirði og
sjóhernaður í Norður -Íshafi 1940-1943“

Kvöldkaffi verður drukkið að Hlöðum.
Komið heim um kl. 23.00.
Ferðin kostar  1.500,- kr.

Erna Reynisdóttir, 3/5 2012

Guðsþjónusta sunnudaginn 6. maí sem er 4. sd. eftir páska

Guðþjónusta kl. 11.00.
Séra Lena Rós Matthíasdóttir prédikar og þjónar fyrir altari.
Kór kirkjunnar syngur.
Organisti: Hákon Leifsson.

Sunnudagaskóli kl. 11.00
Séra Sigurður Grétar Helgason.
Umsjón hefur: Þóra Björg Sigurðardóttir.
Undirleikari: Stefán Birkisson.

Erna Reynisdóttir, 3/5 2012

CARMINA BURANA

Laugardaginn 5. maí kl. 17.00
flytur Kór Grafarvogskirkju ásamt Stúlknakór Reykjavíkur kórverkið
Carmina Burana eftir Carl Orff.
Einsöngvarar eru:
Hlín Pétursdóttir sópran
Einar Clausen tenór
Jón Svavar Jósepsson barriton
Hljómsveit: Camerata Musica
Stjórnendur: Hákon Leifsson og Margrét Pálmadóttir

Miðaverð í forsölu 2.500,- kr.
Miðaverð við innganginn 3.000,- kr.

Erna Reynisdóttir, 2/5 2012

Helgihald sunnudaginn 29. apríl sem er 3. sd. eftir páska

Guðsþjónusta kl.11.00.
Séra Lena Rós Matthíasdóttir prédikar og þjónar fyrir altari.
Kór kirkjunnar syngur.
Organisti: Hákon Leifsson.

Sunnudagaskóli kl. 11.00.
Séra Sigurður Grétar Helgason.
Umsjón hefur: Þóra Björg Sigurðardóttir.
Undirleikari: Stefán Birkisson.

Erna Reynisdóttir, 25/4 2012

Kveðja frá Gunnari í Noregi

Já, komið þið sæl og blessuð. Af okkur fjölskyldunni er allt dásamlegt að frétta. Núna eru við búin að vera hérna í rétt rúma 3 mánuði og allt gengur vel, lífið í Noregi er farið að taka á sig nokkuð fastar skorður og allt er að komast í eðlilegt horf.

Eldri börnin tvö, Steingrímur Ingi og Friðbjörg Anna, byrjuðu í skólanum strax daginn eftir að við komum hingað um miðjan janúar, en sá yngsti, Rúnar Haukur, byrjar á leikskólanum í ágúst. Börnin eru afar glöð og þau eldri eru búin að eignast fullt af vinum og vinkonum og er ávallt fullt hús hjá okkur af börnum.  Rúnar Haukur er heima á daginn með Steina afa sínum sem flutti með okkur til Noregs. Hann er afar ánægður með afa sinn og spjalla þeir heilmikið saman á daginn, um heima og geima.

Okkur hjónunum gengur vel í okkar störfum. Erla vinnur sem sjúkarþjálfari í Malm, sem er næsti bær við okkur, og þangað er u.þ.b. 12 mín akstur. Ég hins vegar hef tvær skrifstofur (sem samanlagt ná þó ekki stærðinni á skrifstofunni sem ég hafði í Grafarvogskirkju J ), eina á skrifstofu norsku kirkjunnar í Steinkjer (sem er í um 15 mín. akstri frá heimili okkar) og eina á skrifstofu norsku kirkjunnar í Namdalseid (sem einnig er í um 15 mín. akstri frá heimilinu, en í hina áttina).
Starfið í kirkjunum og söfnuðunum gengur vel og höfum við fengið frábærar mótttökur.

Norðmenn virðast vera einstaklega hjálpsamir, kunna svo sannarlega að taka vel á móti fólki, a.m.k er það okkar upplifun. Þegar gámurinn kom með búslóðina okkar (40 feta gámur) þá var svo mikill snjór í götunni okkar og mikil þrengsli að flutningabíllinn komst ekki inn götuna. En norðmenn deyja ekki ráðalausir, því bílnum með gámnum var lagt á stórt bílaplan, nokkurn spöl frá húsinu, þangað kom svo minni flutningabíll og traktor með kerru sem er lítið minni en Laugardalslaugin og svo var öllu skúbbað úr gámnum í bílinn og á kerruna og flutt að húsinu okkar. Ekki vorum við ein við þetta, heldur spruttu upp um 30 manns, nágrannar okkar og aðrir, og hjálpuðu okkur. Þetta kláraðist á innan við 2 klst, sem var viðmiðið, því annars hefðum við þurft að greiða bílstjóra flutningabílsins yfirvinnu. Eftir þetta var svo öllum boðið í kaffi og vöfflur til eins af nágrönnum okkar.

Núna er vorið komið hér í Noregi, fuglasöngur út um allt og um 70.000 gæsir hafa viðkomu í þorpinu okkar á leið sinni á varpstöðvar í Norður Noregi og á Svalbarða. Grasið farið að grænka töluvert, tré farin að laufgast og börnin leika sér úti alla daga, og trampólín komið í garðinn. Lífið leikur við okkur hér í Noregi, en það veit Guð að við vissulega söknum Íslands.

Kærar kveðjur frá Beitstad,
Gunni, Erla, Steingrímur Ingi, Friðbjörg Anna, Rúnar Haukur og Steini afi.

Erna Reynisdóttir, 24/4 2012

Helgihald fyrsta sunnudag eftir páska

Grafarvogskirkja
Fermingar kl. 10:30 og 13:30.
Í fyrri fermingunni þjóna sr. Vigfús Þór Árnason og sr. Guðrún Karls Helgudóttir en í þeirri síðari þjóna sr. Vigfús Þór Árnason og sr. Lena Rós Matthíasdóttir. Organisti og kórstjóri er Hákon Leifsson. Kór kirkjunnar syngur.
Sunnudagaskóli kl. 11:00 á neðri hæð kirkjunnar. Umsjón hefur Þóra Björg Sigurðardóttir. Undirleikari er Stefán Birkisson.

Borgarholtsskóli
Messa kl. 11:00
- Séra Sigurður Grétar Helgason þjónar ásamt messuþjónum. Organisti er Guðlaugur Viktorsson og félagar úr Kammerkór Grafarvogskirkju syngja.
Sunnudagaskóli kl. 11:00 - Umsjón hefur Anna Arnardóttir.
Velkomin!

Guðrún Karlsdóttir, 14/4 2012

Skráning í fermingarfræðslu 2011 - 2012

Kirkjan er opin alla virka daga frá 10.00 til 16.00.
Viðtalstímar eru eftir samkomulagi, tímapantanir í s. 587-9070

Prestur á neyðarvakt samstafrssvæðis Grafarvogs-, Grafarholts- og Árbæjarsafnaðar s. 896-7970.


Sr Vigfús Þór Árnason sóknarprestur
srvigfus@grafarvogskirkja.is
Sr Lena Rós Matthíasdóttir
srlenaros@grafarvogskirkja.is
Sr Guðrún Karls Helgudóttir
srgudrun@grafarvogskirkja.is
Heimasíða: www.gudrunkarlsdottir.com
Sr Sigurður Grétar Helgason
srsigurdur@grafarvogskirkja.is
Organisti Hákon Leifsson
hakon@vortex.is

Orð Guðs til þín
Með því að draga hér mannakorn færð þú stuttan ritningartexta úr Biblíunni.

Grafarvogskirkja á Facebook

Myndir á flickr.com

Trú.is

Hjálparstarf kirkjunnar



Musteri Sálarinnar: Uppskriftir

Fimmtudagur

10:00-12:00 Foreldramorgnar í kirkju
20:00-22:00 Sorgarhópur fyrir fólk sem hefur misst maka (Lokaður hópur frá 19. janúar)

Dagskrá ...