Grafarvogskirkja

 

Pílagrímagöngur og útiguðsþjónusta á Nónholti

Sunnudaginn 18. júlí kl. 11:00 verður sameiginleg útiguðsþjónusta Grafarholts-, Árbæjar- og Grafarvogssafnaða.  Munu söfnuðurnir leggja upp í pílagrímagöngu, hver frá sinni kirkju og mætast á Nónholtinu kl. 11:00.  Við í Grafarvoginum ætlum að hittast við kirkjuna okkar kl. 10:00 og leggja upp í pílagrímagöngur þaðan.  Hægt verður að velja í milli tveggja leiða, styttri eða lengri hringinn um voginn.  Pílagrímaganga er helgiganga og verður lesinn texti á völdum stöðum á leiðinni.  Fyrir þau sem erfitt eiga um gang, er hægt að aka niður að meðferðarheimilinu Vogi, og ganga þaðan örstuttan spotta niður að Nónholti.

Lena Rós Matthíasdóttir, 12/7 2010 kl. 15.22

     

    Grafarvogskirkja við Fjörgyn, 112 Reykjavík. Sími 587-9070/8967970 , fax 587-9267 · Kerfi RSS