Grafarvogskirkja

 

Marglitt mannlíf á Grafarvogsdaginn

Þann 4. september verður Grafarvogsdagurinn haldinn hátíðlegur um allt hverfið.  Kirkjan okkar tekur að sjálfsögðu þátt í hátíðarhöldunum og verður með helgistund kl. 13:00 á hátíðarsvæðinu við Gufunesbæ.    Unga fólkið í Vox Populi leiðir söng undir stjórn Guðlaugs Viktorssonar og ungt fólk leiðir stundina ásamt séra Lenu Rós Matthíasdóttur.  Helgistundin ber yfirskriftina ,,Marglitt mannlíf” og er vísun í litaþema dagsins, en hverfahlutar Grafarvogs verða skreyttir mismunandi litum þennan dag.  Verið hjartanlega velkomin!

Lena Rós Matthíasdóttir, 1/9 2010 kl. 9.30

     

    Grafarvogskirkja við Fjörgyn, 112 Reykjavík. Sími 587-9070/8967970 , fax 587-9267 · Kerfi RSS