Grafarvogskirkja

 

Allt starfið er að hefjast á ný eftir jólafrí - Sunnudagaskólar, guðsþjónustur í Borgarholtsskóla, æskulýðsfélagið, foreldramorgnar og fjörfiskar

Sunnudagaskólarnir byrja aftur sunnudaginn 15. janúar og eru alla sunnudaga kl. 11 í kirkjunniogBorgarholtsskóla.

Æskulýðsfélagið byrjaði mánudaginn 9. janúar og er öll mánudagskvöld kl. 20-22. Þau sem vilja fara með á Febrúarmót í Vatnaskógi í lok febrúar verða að byrja að mæta strax!

Foreldramorgnar hefjast á ný fimmtudaginn 12. janúar og eru alla fimmtudaga kl. 10-12. Á fyrsta fundinum verður dagskrá vorsins ákveðin í samráði við þau sem mæta.

Fjörfiskar byrja byrja miðvikudaginn 11. janúar og eru á miðvikudögum kl. 17-17:30. Þetta er sönghópur fyrir 4 - 6 ára krakka.

Guðsþjónustur í Borgarholtsskóla hefjast á ný sunnudaginn 15. janúar kl. 11. Guðsþjónusturnar eru alla sunnudaga fram í byrjum maí og eru alltaf kl. 11 nema fyrsta sunnudag í mánuði en þá er Gospelmessa kl. 17.

Eldriborgarasamverur í kirkjunni hófust á ný þriðjudaginn 10. janúar kl. 13.30. Þessar samverur verða alla þriðjudaga frá 13.30-16 út maí. Samveran hefst á helgistund, þá er boðið upp á spil eða handavinnu og lýkur með kaffi.

Um starfið sem er allan ársins hring s.s. kyrrðarstundir og helgihald í kirkjunni er hægt að lesa hér á heimasíðunni.

Guðrún Karlsdóttir, 15/1 2012 kl. 14.04

     

    Grafarvogskirkja við Fjörgyn, 112 Reykjavík. Sími 587-9070/8967970 , fax 587-9267 · Kerfi RSS