Almennar guðsþjónustur

Almenn guðsþjónusta er hvern helgan dag kl. 11:00 í Grafarvogskirkju og einnig í Borgarholtsskóla yfir vetrarmánuðina. Prestar safnaðarins skiptast á að þjóna fyrir altari. Kór Grafarvogskirkju leiðir safnaðarsöng. Organisti er Hákon Leifsson í kirkjunni en Guðlaugur Viktorsson í Borgarholtsskóla. Messuþjónar bera uppi guðsþjónustu, ásamt prestum safnaðarins. Kaffi á könnunni eftir guðsþjónustuna.
Messan í kirkjunni hefur verið með hefðbundnu sniði, en messan í Borgarholtsskóla hefur verið með ,,léttara” yfirbragði og tónlist sem fellur vel að ungu fólki. Börnin hefja stundina með foreldrum í messunni, en fara síðan í hliðarsal ásamt barnastarfsfólkinu. Í Borgarholtsskóla er líka gott aðgengi fyrir barnavagna og því auðvelt að taka ungabörn með í messu.
“Þá munu menn koma frá austri og vestri, frá norðri og suðri og sitja til borðs í Guðs ríki.” Lúk. 13.29
