Barnastarf
![]()
Sunnudagaskólar
Sunnudagaskólar eru alla sunnudaga klukkan 11.00 í Grafarvogskirkju og í Borgarholtsskóla.
Tekið er fagnandi á móti fjölskyldunni allri en foreldrar eru hvattir til að mæta með börnum sínum í þessar líflegu guðsþjónustur.

Starfsfólk sunnudagaskólanna í vetur eru sem hér segir:
Borgarholtsskóli
Linda Jóhannsdóttir, leiðtogi
Markús, tónlist
Grafarvogskirkja (niðri)
Þóra Björg Sigurðardóttir, leiðtogi
Stefán Birgisson, tónlist
Sunnudagaskólarnir byggja að nokkru leyti á efni frá Fræðslusviði Biskupsstofu sem útgefið er af Skálholtsútgáfunni.
Rauði þráðurinn í Sunnudagaskólunum eru Biblíusögur, söngvar, Hafdís og Klemmi, leikir, föndur og bænir. Í barnastarfinu er reynt að virkja börnin og hvert og eitt barn er mikilvægur þátttakandi. Brúður á við Rebba-Ref, Gullu-Gæs, Engilráð Andarunga og fleiri eru einnig ómissandi félagar í sunnudagaskólanum.
Fjörfiskar
Sönghópur í kirkjunni fyrir 4 - 6 ára krakka. Fjörfiskar eru krakkar á leikskólaaldri sem hafa gaman af að syngja. Einnig er farið í leiki og annað skemmtilegt. Umsjón hefur Þóra Björg Sigurðardóttir.
