Unglingakór
Kórinn verður ekki starfandi veturinn 2011-2012, en hér fyrir neðan má finna upplýsingar um kórinn. Ef allt gengur að óskum mun kórinn taka aftur til starfa og verður þá nánar auglýstur síðar.
Unglingakórinn er fyrir unglinga á aldrinum 12 ára og eldri. Unglingakórinn hefur farið fimm sinnum til útlanda, þ.e. á alþjóðlegt kóramót ,,Europe Cantat” í Barselóna á Spáni 1998, á norrænt kóramót (Norbusang) í Kalmar í Svíþjóð 2001, í tónleikaferð til Skotlands 2003 þar sem hann söng m.a. hádegistónleika í St. Gile’s Dómkirkjunni í Edinborg, og til Bandaríkjanna og Kanada 2005 og nú síðast til Svíþjóðar sumar 2008. Vorið 2006 tók hann þátt í Landsmóti barna- og unglingakóra á Höfn í Hornafirði.
Kórinn syngur við athafnir í Grafarvogskirkju að meðaltali einu sinni í mánuði og er miðnæturguðsþjónustan á jólanótt hápunktur vetrarins þar sem kórinn sér alfarið um söng. Tónleikar ásamt öðrum kórum kirkjunnar eru tvisvar á ári, þ.e. jóla- og vortónleikar. Vorið 2008 flutti kórinn t.d. söngleikinn ,,Sekkur jörðin”, e. John Hoybye, ásamt hljómsveit og einsöngvurum úr kórnum.
Unglingakórinn hefur margsinnis komið fram utan Grafarvogskirkju og tekið þátt í alls kyns uppákomum eins og Kristnitökuhátíð árið 2000, Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju ásamt Unglingakórum Hafnarfjarðarkirkju og Hallgrímskirkju vorið 2003, þar sem flutt var verkið ,,Messe basse” eftir Fauré, Jónsmessuhátíð í Skólavörðuholtinu á vegum Þjóðkirkjunnar 2005, þátttaka í flutningi á ,,Guðbrandsmessu” eftir Gunnar Þórðarson ásamt kirkjukórum, barna- og unglingakórum úr Grafarvogskirkju, Keflavíkurkirkju og Skálholtskirkju svo eitthvað sé nefnt. Einnig hefur verið vinsælt að fá kórinn til að koma og skemmta fólki og syngja á jólahlaðborðum og árshátíðum hjá hinum ýmsu félagasamtökum.
Félagslífið hefur bæði verið gott og skemmtilegt í gegnum árin. Farið er í æfingabúðir yfir helgi tvisvar á ári og þar fyrir utan hittast kórfélagar nokkrum sinnum yfir veturinn og gera eitthvað skemmtilegt saman.
Kórinn er í vináttusambandi við bandaríska drengjakórinn ,,Land og Lakes Choirboys” frá Minnesota í Bandaríkjunum. Ferðin sem farin var til Minnesota og á Íslendingaslóðir í Kanada var m.a. til að endurgjalda drengjakórnum heimsókn hans til okkar sumarið 2004.
