Grafarvogskirkja og Íslenska Kristskirkjan bjóða upp á nýtt Alfanámskeið á vormisseri. Námskeiðið hefst þriðjudagskvöldið 24. janúar kl. 19:00 með léttum kvöldverði. Kynningarkvöld verður þriðjudaginn 17. janúar kl. 20:00. Hvort tveggja verður í húsnæði Íslensku Kristskirkjunnar, Fossaleyni 14, 112 Reykjavík.
Skráning fer fram í síma Grafarvogskirkju, 5879070 og srlenaros@grafarvogskirkja.is og hjá Íslensku Kristskirkjunni í síma, 5678800 (Böðvar s. 8991552) og kristskirkjan@kristskirkjan.is
Lena Rós Matthíasdóttir, 15/1 2012

Grafarvogskirkja:
Sunnudagaskóli kl. 11:00. Umsjón hefur Gunnar Einar Steingrímsson djákni. Þetta er síðasti sunnudagaskólinn sem Gunnar Einar hefur umsjón með áður en hann heldur til nýrra starfa í Noregi.
Messa kl. 11:00. Fermingarbörn úr Engjaskóla og Rimaskóla eru sérstkalega boðin velkomin ásamt fjölskyldum sínum. Séra Vigfús Þór Árnason og Guðrún Karlsdóttir þjóna ásamt messuþjónum. Organisti er Hákon Leifsson. Kór kirkjunnar syngur. Eftir messu verður stuttur fundur með fermingarbörnum og foreldrum þar sem farið verður yfir ferminguna og undirbúnin hennar.
Guðsþjónusta kl. 14:00. Gunnar Einar Steingrímsson verður kvaddur og eru öll þau er vilja kveðja hann sérstaklega kvött til þess að mæta. Allir prestar safnaðarins þjóna ásamt Gunnari. Organisti er Hákon Leifsson. Kór kirkjunnar syngur.
Borgarholtsskóli:
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11:00. Séra Lena Rós Matthíasdóttir og Linda Jóhannsdóttir þjóna. Organisti er Guðlaugur Viktorsson.
Guðrún Karlsdóttir, 12/1 2012

Fermingarfræðslan hefst á ný samkvæmt stundaskrá í vikunni 9.-15. janúar.
Fermingarbörn eru beðin um að mæta með kennslugögn með sér. Verkefnin sem eiga nú þegar að vera unnin úr kennslubókinni ,,Líf með Jesú” eru á blaðsíðum: 4-5, 6-7, 13-15, 16-17, 36-38, 39-40, 45-47, 50-51 og 57-58. Verkefnin voru ekki unnin í þessari röð, en það kemur ekki að sök því aðalatriðið er að vinna þau. Fermingarbörnin eru hvött til að myndskreyta og vanda vinnubrögð.
Guðsþjónustur með fermingarbörnum og foreldrum þeirra verða sem hér segir:
15. janúar kl. 11:00 - Fermingarbörn úr Engja- og Rimaskóla og foreldrar þeirra
22. janúar kl. 11:00 - Fermingarbörn úr Folda-, Hamra- og Húsaskóla og foreldrar þeirra
29. janúar kl. 11:00 - Fermingarbörn úr Borga- og Víkurskóla og foreldrar þeirra
Eftir guðsþjónustu verður stuttur fundur með foreldrum fermingarbarna um aðdraganda að fermingu og fermingarathöfnina sjálfa.
Kaffi og kleinur eftir fund.
Lena Rós Matthíasdóttir, 6/1 2012
Þetta mun vera í 17. sinn sem héraðspresturinn okkar, dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson stendur fyrir þessari fallegu guðsþjónustu. Kvartett Björns Thoroddsen annast tónlistina og stundum höfum við verið svo lánsöm að fá að hlusta á héraðsprestinn grípa í saxafóninn sinn. Verið hjartanlega velkomin!
Lena Rós Matthíasdóttir, 4/1 2012

31. desember, gamlársdagur
Aftansöngur í kirkjunni kl. 18:00
Prestar: Séra Vigfús Þór Árnason og séra Sigurður Grétar Helgason
Kór Grafarvogskirkju syngur
Einsöngur: Sigrún Hjálmtýsdóttir “Diddú”
Organisti: Hákon Leifsson
1. janúar 2012, nyársdagur
Hátíðarguðsþjónusta í kirkjunni kl. 14:00:00
Prestur: Séra Lena Rós Matthíasdóttir
Kór Grafarvogskirkju syngur
Einsöngur: Einar Clausen
Organisti: Hákon Leifsson
8. janúar
Jassmessa í kirkjunni kl. 11:00
Prestur: Séra Sigurjón Árni Eyjólfsson
Kvartett Björns Thoroddsen leikur
15. janúar hefjast sunnudagaskólarnir á ný bæði í Borgarholtsskóla og í kirkjunni.
15. janúar hefjast einnig guðsþjónustur í Borgarholtsskóla á ný.
Guðrún Karlsdóttir, 19/12 2011
Fjölskylduguðsþjónusta í kirkjunni kl. 11:00 - Séra Lena Rós Matthíasdóttir þjónar ásamt Gunnari Einari
Steingrímssyni djákna og Stefáni Birkissyni. Jólasveinar koma í heimókn.
Fjölskylduguðsþjónusta í Borgarholtsskóla kl. 11:00 - Séra Sigurður Grétar Helgason þjónar ásamt Þóru Björk Sigurðardóttur, Lindu Jóhannsdóttur og Guðlaugi Viktorssyni. Jólasveinar koma í heimsókn.
Velkomin!
Guðrún Karlsdóttir, 16/12 2011
Prjónakvöld verður í kvöld takið handavinnuna með.
Við fáum kynningu á silkigarni.
Eigum notalega stund í kirkjunni, kaffiveitingar og spjall við kertaljós.
Erna Reynisdóttir, 14/12 2011
Fram koma kirkjukórinn og Vox Populi. Þorgrímur Jónsson og Sólkatla Ólafsdóttir syngja einsöng. Stjórnendur
eru Hákon Leifsson og Guðlaugur Viktorsson. Á tónleikunum verða flutt jóla- og aðventulög.
Aðgangur er ókeypis.
Velkomin!
Guðrún Karlsdóttir, 9/12 2011
Guðsþjónusta kl. 11.00
Séra Guðrún Karlsdóttir þjónar fyrir altari.
Halla Rut Stefánsdóttir guðfræðinemi prédikar.
Kór kirkjunnar syngur.
Organisti er Hákon Leifsson.
Sunnudagaskóli kl. 11.00
Séra Sigurður Grétar Helgason.
Umsjón hefur Gunnar Einar Steingrímsson.
Undirleikari: Stefán Birkisson.
Guðsþjónusta kl. 11.00 í Borgarholtsskóla
Séra Lena Rós Matthíasdóttir prédikar og þjónar fyrir altari.
Forsöngvari er Svava Kristín Ingólfsdóttir.
Organisti: Guðlaugur Viktorsson.
Sunnudagaskóli á sama tíma.
Umsjón hefur Þóra Björg Sigurðardóttir.
Jóalatónleikar á aðventu í Grafarvogskirkju kl. 20.00
Kór Grafarvogskirkju og Vox Populi syngja jóla- og aðventulög í aðdraganda jólanna.
Einsöngur: Sólkatla Ólafsdóttir.
Bassi: Þorgrímur Jónsson.
Kórstjórar: Hákon Leifsson og Guðlaugur Viktorsson.
Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.
Erna Reynisdóttir, 8/12 2011
Fimmtudaginn 8. desember kl. 20.00 mun Ný dögun, Landsspítalinn, líknarsamtökin Karítas og Þjóðkirkjan leiða fyrirbæna- og kertaljósastund undir yfirskriftinni ,,Sorgin og jólin” í Grafarvogskirkju. Þessi fallega kærleiksstund er hugsuð sem uppbyggjandi vettvangur fyrir fjölskyldur í sorg. Við látum nærast við fallega tónlist og huggandi bænaanda. Viðstöddum verður gefinn kostur á að kveikja á kertum til minningar um látna ástvini.
Lena Rós Matthíasdóttir, 7/12 2011