Grafarvogskirkja
Guðsþjónusta með þátttöku Gídeonmanna kl.11:00 - Séra Vigfús Þór Árnason þjónar ásamt Gídeonmönnum, messuþjónum og fermingarbörnum. Sigurbjörn Þorkelsson prédikar. Hákon Leifsson spilar og stjórnar kór kirkjunnar.
Sunnudagaskóli kl. 11:00 á neðri hæð - Umsjón hafa Þóra Björg Sigurðardóttir og séra Lena Rós
Matthíasdóttir. Stefán Birkisson spilar.
Borgarholtsskóli
“Ástin mín” Ljóðaljóðamessa kl. 11:00 - Séra Guðrún Karlsdóttir þjónar ásamt Höllu Stefánsdóttur guðfræðinema, messuþjónum og fermingarbörnum. Vox Populi syngur kærleiksríka sálma undir stjórn Guðlaugs Viktorssonar.
Sunnudagaskóli kl. 11:00 - Umsjón hefur Linda Jóhannsdóttir.
Velkomin!
Guðrún Karlsdóttir, 18/2 2012
Það er aldrei auðvelt að skilja og að halda því fram að skilnaður sé auðveldasta leiðin er byggt á mikilli
vanþekkingu og fordómum. Það tilfinningaferli sem fer í gang hjá fólki sem skilur er ekki ólíkt því sem á sér stað hjá þeim sem missir maka sinn. Þetta ferli kallast sorg. Það er misjafnt hvað fólk syrgir við skilnað því þótt allir syrgi ekki fyrrverandi maka sinn þá getur fólk syrgt það líf sem það átti (fjölskyldulífið, hjónabands/sambúðarlífið) eða vonir um líf sem aldrei varð.
Lífinu lýkur þó sannarlega ekki eftir skilnað! Oft eru þýðir skilnaður betra líf, betri líðan fyrir flest eða öll í umhverfi parsins og fyrir þau sjálf.
Sjálfstyrkingarnámskeiðið verður byggt upp á svipaðan hátt og sorgarhópar. Það hefst á opnum fyrirlestri og kynningu og þar getur fólk skráð sig í hóp. Námskeiðið tekur síðan fimm kvöld og er haldið í lokuðum hópum þar sem gert er ráð fyrir að þátttakendur séu með allan tímann.
Námskeiðið hefst með kynningu þriðjudaginn 14. febrúar kl. 20:00
Velkomin/n!
Guðrún Karlsdóttir, 12/2 2012
Grafarvogskirkja
Guðsþjónusta kl. 11:00. Séra Guðrún Karlsdóttir þjónar ásamt messuþjónum og fermingarbörnum. Hákon Leifsson er organisti og kór kirkjunnar syngur.
Sunnudagaskóli verður á neðri hæð kirkjunnar á sama tíma. Umsjón hafa Þóra Björg Sigurðardóttir og séra Vigfús Þór Árnason. Stefán Birkisson leikur á píanó.
Borgarholtsskóli
Guðsþjónusta kl. 11:00. Séra Sigurður Grétar Helgason þjónar ásamt messuþjónum. Guðlaugur Viktorsson er organisti. Félagar úr Kammerkór Grafarvogssafnaðar leiða söng.
Sunnudagaskóli verður á sama tíma. Umsjón hefur Linda Jóhannsdóttir.
Velkomin í kirkju!
Guðrún Karlsdóttir, 11/2 2012
Alla fimmtudaga kl. 10:00 býður kirkjan foreldra hjartanlega velkomna til samveru með börnum sínum. Við spjöllum saman um heima og geyma, hlustum stöku sinnum á fræðslu og syngjum með litlu krílunum… hver með sínu nefi. Kaffi á könnunni. Verið hjartanlega velkomin!
Lena Rós Matthíasdóttir, 9/2 2012
Guðsþjónusta kl. 11:00
Séra Sigurður Grétar Helgason predikar og þjónar fyrir altari.
Kór Grafarvogskirkju leiðir almennan safnaðarsöng.
Organisti er Hákon Leifsson.
Sunnudagaskóli á neðri hæð kl. 11:00
Umsjón hefur Þóra Björg Sigurðardóttir.
Tónlist í höndum Stefáns Birgissonar.
Gospelmessa í Borgarholtsskóla kl. 17:00
Séra Lena Rós Matthíasdóttir annast helgihald.
Vox Populi leiðir almennan safnaðarsöng.
Tónlist og kórstjórn annast Guðlaugur Viktorsson.
Sunnudagaskóli í Borgarholtsskóla kl. 11:00
Umsjón hefur Linda Jóhannsdóttir.
Tónlist annast Markús Bjarnason.
Lena Rós Matthíasdóttir, 3/2 2012
,Aðalfundur Safnaðarfélags Grafarvogskirkju verður haldinn mánudaginn 6. febrúar 2012 kl. 20:00. Á
dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál.
Steinn Kárason, garðyrkjufræðingur og viðskipta- og umhverfishagfræðingur mun fjalla um ,,Vorverkin í garðinum - og á svölunum” Steinn mun gefa okkur góð ráð um hvenær og hvað er gott að gera núna til að undirbúa garðinn - og svalirnar - fyrir sumarið. Óðum styttist í vorið og gott að hafa tímann fyrir sér þegar kemur að vorverkunum. Steinn hefur margþætta reynslu og hefur gefið út bækur og mynddiska með fræðsluefni um flest allt er lýtur að garðyrkju.
Við hlökkum til að sjá ykkur sem allra flest; vonum að þið takið með ykkur gesti og og eigið skemmtilega og fræðandi stund í góðra vina hópi
Velkomin!
Guðrún Karlsdóttir, 2/2 2012
Öll verðum við áhyggjufull þegar börnin okkar verða veik og því er gott að fá fræðslu um þessi mál. Kaffi á könnunni, uppbyggilegt spjall, leikur og söngur.
Umsjón hefur Linda Jóhannsdóttir.
Guðrún Karlsdóttir, 31/1 2012
Messa kl.11.00.
Fermingarbörn úr Borga- og Víkurskóla ásamt foreldrum eru sérstaklega boðin velkomin.
Séra Vigfús Þór Árnason og séra Sigurður Grétar Helgason þjóna fyrir altari.
Kór kirkjunnar syngja.
Organisti: Hörður Bragason.
Sunnudagaskóli kl.11.00.
Séra Lena Rós Matthíasdóttir. Umsjón hefur Þóra Björg Sigurðardóttir.
Undirleikari: Stefán Birkisson.
Þorraguðsþjónusta kl. 11.00 í Borgarholtsskóla.
Séra Guðrún Karlsdóttir þjónar ásamt messuþjónum.
Organisti: Guðlaugur Viktorsson.
Sunnudagaskóli á sama tíma.
Umsjón hefur Linda Jóhannsdóttir.
Erna Reynisdóttir, 26/1 2012
Alla fimmtudaga kl.10-12 á neðri hæð kirkjunnar. (Gengið inn hjá bókasafninu).
Fræðandi og skemmtilegar samverustundir.
Krílasálmar fyrir litlu krúttin.
Alltaf kaffi á könnunni - djús og brauð fyrir börnin.
Erna Reynisdóttir, 24/1 2012
Messa kl. 11.00.
Fermingarbörn úr Folda- Hamra- og Húsaskóla ásamt foreldrum eru sérstaklega boðin velkomin.
Séra Vigfús Þór Árnason og séra Lena Rós Matthíasdóttir þjóna fyrir altari.
Kór Kirkjunar syngur.
Organisti: Hákon Leifsson.
Fundur eftir messu þar sem fjallað er um fermingardaginn og atriði er lúta að fermingunni.
Sunnudagaskóli kl. 11.00.
Séra Guðrún Karlsdóttir.
Umsjón hefur: Þóra Björg Sigurðardóttir.
Undirleikari: Stefán Birkisson.
Guðsþjónusta kl. 11.00 í Borgarholtsskóla.
Séra Sigurður Grétar Helgason prédikar og þjónar fyrir altari.
Vox Populi syngur.
Organisti: Guðlaugur Viktorsson.
Sunnudagaskóli á sama tíma.
Umsjón hefur: Linda Jóhannsdóttir.
Erna Reynisdóttir, 20/1 2012