Unglingakórinn býr sig nú undir heimferð. Í gær var farið í Mall of America og auðvitað tóku þær lagið. Sjá meir á vefseli kórsins. Ferðin hefur verið hin viðburðaríkasta og nú hillir undir heimferð.
Lesa áfram …
bjorn.erlingsson, 13/7 2005
Unglingakórnumm hefur verið vel tekið hvar sem hann hefur komið og mótttökurnar í Íslendingabyggðum Kanada hafa verið sérstaklega hlýjar. Í Gimli, The Jonston Hall, Ardal- Geysir Evangelical Lutheran Church, First Lutheran Church og fleiri stöðum. Sjá meira á vefseli kórsins.
Lesa áfram …
bjorn.erlingsson, 7/7 2005
Sunnudaginn 3. júlí kl. 11:00 verður Guðsþjónusta í Grafarvogskirkju. Séra Elínborg Gísladóttir þjónar.
Lesa áfram …
elinborg.gisladottir, 1/7 2005
Mikil spenna og tilhlökkun var þegar Unglingakórinn lagði af stað. Myndalegur hópur, Grafarvogssókn og landi til sóma. Búið er að koma myndum frá brottför, ferðalagi og komunni til Bandaríkjanna á vefseli Kórsins, en þar er líka hægt að nálgast ferðasöguna.
Lesa áfram …
bjorn.erlingsson, 30/6 2005
Sunnudaginn 26. júní, kl. 11:00 verður sameiginleg Guðsþjónusta safnaðanna í Ólafsfirði og Grafarvogi. Séra Elínborg Gísladóttir og séra Lena Rós Matthíasdóttir þjóna fyrir altari. Sóknarpresturinn í Ólafsfirði, séra Sigríður Munda Jónsdóttir predikar.
Lesa áfram …
Lena Rós Matthíasdóttir, 23/6 2005
Unglingakór grafarvogskirkju heldur í söngferðalag til Bandaríkjanna og Kanada. Nýtt vefsel ferðarinnar hefur verið opnað og mun af því vera hægt að fylgjast með með því helsta sem á daga þeirra drfífur.
Lesa áfram …
bjorn.erlingsson, 15/6 2005
Næstkomandi sunnudag, sunnudagin 19. júní, verður haldið upp á fimmára vígsluafmæli Grafarvogskirkju. Þá mun herra Karl Sigurbjörnssonbisup Íslands prédika og prestar safnaðrins þjóna fyrir altari. Að lokinni messu er boðið upp á léttar veitingar.
Lesa áfram …
bjorn.erlingsson, 14/6 2005
Sunnudaginn 12. júní, kl. 11:00. Séra Lena Rós Matthíasdóttir predikar og þjónar fyrir altari.
Lesa áfram …
Lena Rós Matthíasdóttir, 10/6 2005
Hátíðarhöld sjómannadagsins í Grafarvogi hefjast sunnudaginn 5. júní kl. 09:30 við fornt naust fyrir neðan kirkjuna. Guðsþjónusta hefst kl. 10:00
Lesa áfram …
bjorn.erlingsson, 2/6 2005
Mikil þátttaka var í flugmessunni sem haldin var sl. sunnudag eða rúmlega 600 manns. Fólk úr ýmsum greinum flugrekstrar bar uppi guðsþjónustuna, - flugfreyjukór, hljóðfæaraleikarar, lestur ritninga og bæna. Sjá svipmyndir frá samkomunni.
Lesa áfram …
bjorn.erlingsson, 31/5 2005