Hið árlega páskaeggjabingó
Hið árlega páskaeggjabingó á vegum Safnaðarfélags Grafarvogskirkju verður haldið í safnaðarsal kirkjunnar mánudaginn 21. mars kl. 20:00
bjorn.erlingsson, 20/3 2005
Hið árlega páskaeggjabingó á vegum Safnaðarfélags Grafarvogskirkju verður haldið í safnaðarsal kirkjunnar mánudaginn 21. mars kl. 20:00
bjorn.erlingsson, 20/3 2005
KKK, stendur fyrir ,,Kátir krakkar í kyrruviku” og eru þemadagar í dymbilviku. Börnum í 1. bekk grunnskóla er boðið að taka þátt í þessari sérstöku dagskrá kirkjunnar dagana 21. - 23. mars, kl. 09:00-12:00. Við ætlum að föndra, fara í leiki og fræðast um þá atburði sem tengjast dymbilvikunni.
Lena Rós Matthíasdóttir, 14/3 2005
Sunnudagurinn 20. mars er Pálmasunnudagur. Fermingarguðsþjónustur verða kl. 10:30 og kl. 13:30 í Grafarvogskirkju. Fermd verða börn úr Engjaskóla (8.H) og Borgaskóla (8. HN).
Lena Rós Matthíasdóttir, 7/3 2005
Miðvikudaginn 2. mars, kl. 20:00 verður haldið sérstakt ,,stelpukvöld” í Grafarvogskirkju. Yfirskrift kvöldsins er ,,heilbrigt líf.” Ágústa Johnson líkamsræktarfrömuður kemur og ræðir um heilbrigt líferni og Harpa Hrönn Gunnarsdóttir talar um reynslu sína af átröskunarsjúkdómi.
Lena Rós Matthíasdóttir, 2/3 2005
Æskulýðsmessa verður í Grafarvogskirkju sunnudagskvöldið 6. mars, kl. 20:00.
Séra Bjarni Þór Bjarnason leiðir stundina. Sérstakur gestur kvöldsins er söngvarinn Jón Jósep Snæbjörnsson, meðlimur hljómsveitarinnar ,,Í svörtum fötum.” Jónsi (eins og hann er oftast kallaður) verður með hugleiðingu fyrir unga fólkið og að sjálfsögðu tekur hann nokkur lög fyrir okkur.
Lena Rós Matthíasdóttir, 2/3 2005
Stofnað hefur verið vefmyndaalbúm Grafarvogskirkju á Flickr-vefselinu. Fyrstu myndaraðirnar sem komnar eru upp eru frá þorrablóti eldriborgarastarfsins (sjá hér) og svipmyndir úr starfi unglingakórsins (sjá hér). Þeir sem vilja leggja þessu safni til efni og krafta (merkja upp myndir) til að minningarnar varðveitist vel hafi samband við vefumsjónarmann.
bjorn.erlingsson, 1/3 2005
Sunnudagurinn 27. febrúar er 3. sunnudagur í föstu. Almenn Guðsþjónusta hefst kl. 11:00. Að þessu sinni verður Guðsþjónustunni útvarpað beint á RÚV.
Lena Rós Matthíasdóttir, 21/2 2005
Tónlistarstund í Grafarvogskirkju sunnudaginn 20.febrúar kl. 20:00. Flytjendur eru Lux Terrae ásamt unglingakór Grafarvogskirju. Aðgangur ókeypis og selt verður kaffi til ágóða fyrir ferðasjóð unglingakórsins að tónleikum loknum. Tónlistarhópurinn Lux terrae (Ljós jarðar) hefur að undanförnu vakið athygli fyrir nýstárlega sálmadagsskrá.
bjorn.erlingsson, 16/2 2005
Hinn eiginlegi föstutími hefst miðvikudaginn eftir sunnudag í föstuinngang. Þá eru fjörutíu virkir dagar til páska. Þessi dagur heitir öskudagur hjá okkur (dies cinerum). Það nafn eða lík nöfn á þessum degi eru algengust í hinum kristna heimi. Askan er tákn iðrunar og er víða notuð í helgihaldi þess dags.
kristjan.valur.ingolfsson, 9/2 2005
9. febrúar nk., á öskudag, kl. 18:00, hefjast stuttar helgistundir í Grafarvogskirkju sem verða alla virka daga föstunnar, í 31 skipti alls. Fjármálaráðherra, Geir H. Haarde, mun verða fyrstur til að lesa.
Bjarni Þór Bjarnason, 7/2 2005
Skráning í fermingarfræðslu 2011 - 2012
Kirkjan er opin alla virka daga frá 10.00 til 16.00.
Viðtalstímar eru eftir samkomulagi, tímapantanir í s. 587-9070
Sími vakthafandi prests er 8967970.
Sr Vigfús Þór Árnason sóknarprestur
srvigfus@grafarvogskirkja.is
Sr Sigurður Grétar Helgason
srsigurdur@grafarvogskirkja.is
Sr Lena Rós Matthíasdóttir
srlenaros@grafarvogskirkja.is
Sr Guðrún Karlsdóttir
srgudrun@grafarvogskirkja.is
Heimasíða: www.gudrunkarlsdottir.com
Organisti Hákon Leifsson
hakon@vortex.is
Orð Guðs til þín
Með því að draga hér mannakorn færð þú stuttan ritningartexta úr Biblíunni.






12:00-13:00 Kyrrðarstund - fyrirbænastund og altarisganga í Kirkju
17:00-17:30 Fjörfiskar - söngstund fyrir 4-6 ára krakka
20:00 Kirkjukór- kóræfing í Kirkju
Grafarvogskirkja við Fjörgyn, 112 Reykjavík. Sími 587-9070/8967970 , fax 587-9267 · Kerfi ![]()