Hátíðarguðþjónusta 1. maí
Hátíðarguðþjónusta 1. maí. Ræðumaður í tilefni dagsins verður Ögmundur Jónasson alþingismaður.
bjorn.erlingsson, 29/4 2005
Hátíðarguðþjónusta 1. maí. Ræðumaður í tilefni dagsins verður Ögmundur Jónasson alþingismaður.
bjorn.erlingsson, 29/4 2005
Grafarvogskirkja mun halda námskeið fyrir starfsfólk leikskólanna í Grafarvogi, laugardaginn 30. apríl nk. kl. 10:00-13:15. Námskeiðið er í boði Grafarvogskirkju og er því starfsfólki leikskólanna að kostnaðarlausu. Nú hafa yfir 70 leikskólakennarar skráð sig á námskeiðið.
Bjarni Þór Bjarnason, 27/4 2005
Lestrarkeppni grunnskólanna er árlegur viðburður hjá nemendum 7. bekkjar. Lokahátíð upplestrarkeppninnar verður haldinn fimmtudaginn 14. apríl kl. 15. Þar leiða saman hesta sína sigurvegarar í lestrarkeppnum grunnskólanna í Grafarvogi. Þetta er liður í samnorrænni lestrarkeppni. Allir eru velkomnir.
bjorn.erlingsson, 12/4 2005
Í ár eru 15 fermingarhópar með 310 fermingarbörnum úr Grafarvogi. 8. bekkingarnir í grunnskólum Grafarvogs, - Foldaskóla, Hamraskóla, Húsaskóla, Rimaskóla, Engjaskóla, Borgarskóla, Víkurskóla og Korpuskóla halda hópinn í fermingarundirbúningnum. Til þess að koma tveimur fermingum að hefur messutíma verið breytt, en barnaguðþjónustur á neðri hæð og í Borgarholtsskóla eru á venjulegum tíma.
bjorn.erlingsson, 11/4 2005
Lúðrasveitin Svanur heldur árlega vortónleika í Grafarvogskirkju mánudaginn 11. apríl kl. 20:00. Stjórnandi er Rúnar Óskarsson og leikin verða verk sem sérstaklega eru samin fyrir lúðrasveitir.
bjorn.erlingsson, 6/4 2005
Að venju verður guðsþjónustuhald fjölbreytt í Grafarvogskirkju um páskahátíðina.
bjorn.erlingsson, 26/3 2005
Passíusálmar Hallgríms Péturssonar, - upplestur, - tónlist, á föstudagurinn langa 25. mars 2005 kl. 13:30 19:00. Lesarar að þessu sinni eru heimilislæknar. Tónlistarumsjón hefur Hörður Bragason organisti, Birgir Bragason leikur á bassa og Hjörleifur Valsson á fiðlu.
bjorn.erlingsson, 23/3 2005
Kvöldmessa verður haldin í Grafarvogskirkju 24. mars, kl. 20:00. Séra Bjarni Þór Bjarnason annast helgihald. Við komum saman í kirkjunni til að minnast þess þegar Jesús neytti síðustu kvöldmáltíðarinnar ásamt lærisveinum sínum.
Lena Rós Matthíasdóttir, 23/3 2005
Hið árlega páskaeggjabingó á vegum Safnaðarfélags Grafarvogskirkju verður haldið í safnaðarsal kirkjunnar mánudaginn 21. mars kl. 20:00
bjorn.erlingsson, 20/3 2005
KKK, stendur fyrir ,,Kátir krakkar í kyrruviku” og eru þemadagar í dymbilviku. Börnum í 1. bekk grunnskóla er boðið að taka þátt í þessari sérstöku dagskrá kirkjunnar dagana 21. - 23. mars, kl. 09:00-12:00. Við ætlum að föndra, fara í leiki og fræðast um þá atburði sem tengjast dymbilvikunni.
Lena Rós Matthíasdóttir, 14/3 2005
Skráning í fermingarfræðslu 2011 - 2012
Kirkjan er opin alla virka daga frá 10.00 til 16.00.
Viðtalstímar eru eftir samkomulagi, tímapantanir í s. 587-9070
Prestur á neyðarvakt samstafrssvæðis Grafarvogs-, Grafarholts- og Árbæjarsafnaðar s. 896-7970.
Sr Vigfús Þór Árnason sóknarprestur
srvigfus@grafarvogskirkja.is
Sr Lena Rós Matthíasdóttir
srlenaros@grafarvogskirkja.is
Sr Guðrún Karls Helgudóttir
srgudrun@grafarvogskirkja.is
Heimasíða: www.gudrunkarlsdottir.com
Sr Sigurður Grétar Helgason
srsigurdur@grafarvogskirkja.is
Organisti Hákon Leifsson
hakon@vortex.is
Orð Guðs til þín
Með því að draga hér mannakorn færð þú stuttan ritningartexta úr Biblíunni.






20:00-21:30 Ækulýðsfélag í kirkju
Grafarvogskirkja við Fjörgyn, 112 Reykjavík. Sími 587-9070/8967970 , fax 587-9267 · Kerfi ![]()