Grafarvogskirkja

 

Safnaðarstarf

Safnaðarstarf Grafarvogskirkju

Sorgarhópar fyrir fólk sem misst hefur maka

Þann 19. janúar kl. 20:00 verður haldinn fyrirlestur um sorg og sorgarviðbrögð í Grafarvogskirkju.  Fyrirlesari verður sr. Lena Rós Matthíasdóttir.  Fyrirlesturinn er öllum opinn og ekki bundinn þátttöku í sorgarhópum.  Í kjölfarið verður áhugasömum boðið að skrá sig í sorgarhóp:

Lokaðan hóp fyrir fólk sem misst hefur maka (ath! þessum hópi verður skipt í yngri og eldri, ef þátttaka leyfir).

Hóparnir hittast í Grafarvogskirkju á fimmtudagskvöldum kl. 20:00.  Tímabilið er frá 26. jan - 1. mars.  Nánari upplýsingar veitir séra Lena Rós Matthíasdóttir, srlenaros@grafarvogskirkja.is

Foreldramorgnar
Hittumst á fimmtudögum kl. 10:00-12:00 í Grafarvogskirkju.  Boðið er upp á áhugaverða fyrirlestra og skemmtilegar og fræðandi samverustundir.  Umsjón hefur Linda Jóhannsdóttir, djáknakandidat.

Fjörfiskar
Sönghópur í kirkjunni fyrir 4 - 6 ára krakka. Umsjón hefur Þóra Björg Sigurðardóttir.

Eldri borgarar
Þátttakendum í þessu starfi fer fjölgandi og er það von okkar að enn bætist í þennan góða hóp. Eldri borgarar hittast í kirkjunni á hverjum þriðjudegi kl. 13:30. Farið er í haustferð á hverju ári.

Prestar kirkjunnar leiða helgistundir á Eirborgum alla þriðjudaga kl. 10:30.

Kirkjukór
Kirkjukórinn æfir og starfar undir styrkri stjórn organistans, Hákons Leifssonar.  Á haustmisseri 2011 verður bætt við söngröddum í kórinn.  Áhugasömum er bent á að setja sig í samband við Hákon Leifsson.

Æskulýðsfélagið Samson
Fyrir unglinga í 8. bekk er öll mánudagskvöld kl. 20:00 á neðri hæð Grafarvogskirkju, gengið inn hjá bókasafninu. Fyrir unglina í 9. og 10. bekk á þriðjudögum klukkan 17.00 á neðri hæð Grafarvogskirkju. Nánari upplýsingar gefur Þóra Björg Sigurðardóttir, æskulýðsleiðtogi.

Prjónakaffi
Er haldið einu sinni í mánuði, á miðvikudagskvöldi kl. 20:00 og er alltaf auglýst á heimasíðu kirkjunnar. Umsjón hefur Linda Jóhannsdóttir.

Safnaðarfélagið
Fundir hjá Safnaðarfélaginu eru á mánudögum kl. 20:00. Öllum þeim sem búa í Grafarvogskprestakalli og tilheyra þjóðkirkjunni er frjálst að ganga í safnaðarfélagið. Verið hjartanlega velkomin!

Kyrrðarstundir
Kyrrðarstundir í Grafarvogskirkju eru í hádeginu á miðvikudögum kl. 12:00 með altarisgöngu og fyrirbænum. Hægt er að fá léttan hádegisverð á vægu verði (frjálst framlag) að lokinni stundinni.  Allir velkomnir.

Að ná áttum og sáttum - sjálfstyrkingarnámsskeið fyrir fráskilda. Námskeiðið er byggt upp eins og sorgarhóparnir. Það hefst á opnum fyrirlestri þann 14. febrúar kl 20:00 og eftir hann verður hægt að skrá sig í hóp sem hittist á fimmtudagskvöldum kl. 20:00-22:00 í sex skipti.

Umsjón hafa Guðrún Karlsdóttir og Sigurður Grétar Sigurðsson, prestar í Grafarvogssöfnuði.
Nánari upplýsingar og skráning í síma 5879070 eða srgudrun@grafarvogskirkja.is
Velkomin!

Annað efni
Vefsíðan www.missir.is á erindi til allra þeirra sem vilja leita sér hjálpar á erfiðum stundum með því að lesa um reynslu og viðbrögð annarra við svipaðar aðstæður. Á vefnum má finna skrá yfir bækur og tímaritsgreinar um sjúkdóma, slys, dauða og áföll af ýmsu tagi.

Bænahópur
Á hverju sunnudagskvöldi kl. 20:00 hittist bænahópur í kirkjunni og er hann öllum opinn. Hægt er að tilkynna um fyrirbænaefni í síma kirkjunnar; 587-9070 eða hjá prestum og djákna safnaðarins.

AA og Al-Anon
Al-Anon er með fundi á föstudagskvöldum kl. 20:00. AA hópur hittist á laugardagsmorgnum kl. 11:00.

Aðrar upplýsingar
Viðtalstímar presta og djákna eru eftir samkomulagi, þriðju- miðviku og fimmtudaga.
Símanúmer Grafarvogskirkju: 587-9070 fax: 587-9267
Netfang:
erna@grafarvogskirkja.is

 

Grafarvogskirkja við Fjörgyn, 112 Reykjavík. Sími 587-9070/8967970 , fax 587-9267 · Kerfi RSS