Grafarvogskirkja

 

Barnastarf

Fjörfiskar

Sönghópur í kirkjunni fyrir 4 - 6 ára krakka. Stundin er aðeins hálftími og er hugsuð fyrir leikskólakrakka sem hafa gaman af að syngja. Einnig er farið leiki og annað skemmtilegt. Umsjón hefur Þóra Björg Sigurðardóttir.

Sunnudagaskólarnir

Sunnudagaskólar eru alla sunnudaga klukkan 11.00 í Grafarvogskirkju og í Borgarholtsskóla.
Tekið er fagnandi á móti fjölskyldunni allri en foreldrar eru hvattir til að mæta með börnum sínum í þessar líflegu guðsþjónustur.
Á hverjum sunnudegi fá börnin gefins fallega örk þar sem fjallað er um biblíusögu dagsins en einnig er þar að finna skemmtilegar þrautir fyrir börnin.
Sunnudagaskólarnir byggja á efni frá Fræðslusviði Biskupsstofu sem útgefið er af Skálholtsútgáfunni.

Bendum við foreldrum að heimsækja síðuna www.barnatru.is ásamt börnum sínum.

Upplýsingar um barnastarfið gefur Þóra Björg Sigurðardóttir.

 

Grafarvogskirkja við Fjörgyn, 112 Reykjavík. Sími 587-9070/8967970 , fax 587-9267 · Kerfi RSS