Foreldramorgnar

Foreldramorgnarnir eru hugsaðir fyrir foreldra ungra barna þar sem hægt er að koma í kirkjuna með litlu krílin og hitta aðra foreldra sem eru að upplifa svipaða hluti með sínum krílum.
Foreldramorgnar eru alla fimmtudaga kl. 10:00 - 12:00. Þangað koma góðir gestir í heimsókn með ýmsar kynningar og fræðslu um það bil mánaðarlega. Það er alltaf heitt á könnunni og gaman að spjalla saman um allt milli himins og jarðar. Fastur punktur í foreldramorgnunum er svo söngstundin þar sem foreldrar setjast í hring með börnunum og sungin eru saman nokkur lög.
Umsjón hefur Linda Jóhannsdóttir BA í djáknafræðum.
Hér er að finna Hvítvoðung, fréttablað foreldramorgnanna.
Við minnum á síðuna www.barnatru.is


