Grafarvogskirkja

 

Musteri sálarinnar


Í helgri bók standa þessi fallegu orð:  ,,Vitið þér ekki, að líkami yðar er musteri heilags anda, sem í yður er og þér hafið frá Guði? …Vegsamið því Guð með líkama yðar.” 

MS stendur fyrir orðið Multiple sclerosis og er sjúkdómur í miðtaugkerfinu (heila og mænu). Multiple Sclerosis er ráðgáta sem valdið hefur miklum heilabrotum innan læknisfræðinnar frá því sjúkdómnum var fyrst lýst af franska taugasjúkdómafræðingnum Charcot árið 1868. Sjúkdómurinn hefur áhrif á miðtaugakerfið og getur, að mismunandi miklu leyti, haft áhrif á taugaboð í heilanum, mænunni og sjóntaugum.

Nafn sjúkdómsins gefur til kynna hvað gerist þegar fólk fær MS. Sclerosis er grískt orð og þýðir ,,ör” eða „harðnandi vefur“og multiple þýðir ,,mörg”. Endurtekin MS köst geta valdið mörgum skemmdum í miðtaugakerfinu og er það afleiðing af niðurbroti mýelins, einangrandi efnis sem umlykur taugafrumurnar. Þetta getur dregið úr hreyfihæfni, skynjun og hugsun að meira eða minna leyti. Síðan MS var fyrst „uppgötvaður“ hefur hann verið rannsakaður ítarlega um víða veröld. Orsakir hans og lækning eru enn óljós. (sjá meira á vef MS félagsins á Íslandi).

Í vetur ætlum við að koma saman í Grafarvogskirkju til þess að sameinast yfir kærleiksmáltíð og eiga stund við borð Drottins. Markmiðið með samverunum er að fræðast og fræða aðra um rétta og góða næringu fyrir fólk með MS sjúkdóminn. Orðin ,,Musteri sálarinnar” benda á hvort tveggja, hið ytra og hið innra.  Markmiðið með samverum okkar er því að uppbyggjast á líkama og sálu. 

Dagskrá haustmisseris:

19. október – Tai Chi leikfimi.  Hægt er að stunda þessa leikfimi sitjandi svo að þau sem komin eru í hjólastól geta líka verið með, leikum okkur svolítið, sprellum og hlæjum, verum ,,útvortis!”  

16. nóvember – Slökun, hugleiðsla og bænagjörð.  Hvernig kyrrum við okkur, einbeiting, öndun og sjálfskoðun.  Verum svolítið hugrökk, en hljóð, kíkjum þarna inn undir þykka skrápinn, verum ,,innvortis!”  

14. desember – Kristileg íhugun.  Kynning á efni sem við förum betur í eftir áramót.  Afar áhugaverðar íhugunaraðferðir úr kristnum arfi austur- og vestur kirkjunnar.  Gerum tilraunir og njótum!  

Stundirnar hefjast kl. 10:00 og enda kl. 13:00. 

Uppbygging stundanna: 

10:00-11:00 – förum í efni dagsins.

11:00-12:00 – samhentur hópur í eldhúsinu

12:00-13:00 – njótum kærleiksmáltíðar og almennt spjall 

Greiða þarf kr. 500 fyrir hvert skipti.

Nánari upplýsingar hjá sr. Lenu Rós í síma 897-6789 eða á netfangið srlenaros@grafarvogskirkja.is

Hjartanlega velkomin!

 

Grafarvogskirkja við Fjörgyn, 112 Reykjavík. Sími 587-9070/8967970 , fax 587-9267 · Kerfi RSS