Grensáskirkja

 

Uppsprettan-sjálfshjálparhópur, miðstöð fyrir atvinnulaust fólk í safnaðarheimili Hjallakirkju


Miðstöð fyrir atvinnulaust fólk í safnaðarheimili Hjallakirkju í Kópavogi opnaði 16. janúar s.l. og er starfrækt alla virka daga frá kl. 9-12.

Hópur áhugafólks hefur fengið afnot af safnaðarheimili í Hjallakirkju í Kópavogi og opnar þar miðstöð fyrir fólk sem hefur misst vinnu sína á síðustu vikum. Miðstöðin getur nýst til margvíslegra hluta:

a. Til að hitta fólk og spjalla yfir kaffibolla.

b. Til að kynna ýmsa hópa eða verkefni sem áhugasamir einstaklingar eru tilbúnir til að standa fyrir.

c. Verið staður til að hefja og enda góðar gönguferðir, fá sér kaffibolla í lokin.

d. Verið vettvangur hugmynda sem upp kunna að koma í framhaldi af opnun miðstöðvarinnar.

Það er ljóst að í hópi þeirra fjölmörgu einstaklinga sem nýlega hafa misst vinnuna eru margir sem hafa kraft til að taka þátt í margvíslegum uppákomum og eru tilbúnir til að hafa frumkvæði, gefa af sér og þiggja af öðrum. Sóknarnefnd Hjallakirkju hefur boðist til að hafa kaffi á boðstólum. Hópurinn biður áhugasama einstaklinga um að gefa sig fram til að aðstoða við verkefnið, til dæmis til að :

a. Koma á morgnana, opna húsið og hella upp á könnuna.

b. Standa fyrir:

1. Námskeiðum, t.d. um fjármál heimilanna, ræðumennsku o.fl.

2. Fyrirlestrum, t.d. um atvinnuleit, líkamsrækt o.fl.

3. Hópum svo sem spilahóp, prjónahóp, myndahóp o.fl.

Áhugasamir hringi í: Eddu Ástvaldsdóttur í síma 896-1240 eftir kl. 17 á daginn
Guðrúnu Huldu Birgis í síma 893-3230 á milli kl. 9-13
Einnig er hægt að senda netpóst á netfangið uppsprettan@hjallakirkja.is Hikið ekki við að láta sjá ykkur, allir eru velkomnir.

Áslaug Sif Guðjónsdóttir, 4/5 2009 kl. 0.00

     

    Grensáskirkja, Háaleitisbraut 66, 103 Reykjavík. Sími 5284410 · Kerfi RSS