Grensáskirkja

 

Fermingarstarf í Grensáskirkju 2011-2012.

Bréf dagsett 6. mai var sent heim til ungmenna sem eru í þjóðkirkjunni, búa í Grensássókn og fæddust árið 1998 (7. bekkur). Í því eru upplýsingar um tilhögun fermingarstarfa í Grensáskirkju vegna ferminga 2012.

Um tvær leiðir er að velja í fermingarundirbúningi, A og B:

Leið A
Væntanlegum fermingarbörnum gefst kostur á að sækja nokkurra daga sumarnámskeið stuttu áður en skóli hefst á ný í ágúst (sjá dagsetningar síðar í bréfinu). Þessi leið hefur gefist vel undanfarin ár. Hún léttir á dagskrá ungmennanna yfir veturinn því þau þurfa ekki að sækja vikulegar fræðslustundir.

Leið B
Að öðrum kosti sækja ungmennin vikulegar fræðslustundir allan veturinn frá byrjun sept. og fram að fermingum. Þær fræðslustundir verða á miðvikudögum kl. 15:30-16:10.

Báðir hópar (A og B) sækja guðsþjónustur, taka þátt í öðrum (u. þ. b. mánaðarlegum) samverum og verkefnum fermingarstarfsins og fara á tveggja daga námskeið í Vatnaskógi.
Í báðum hópum er stuðst við bókina „Líf með Jesú“ sem notuð hefur verið um árabil.

Sumarnámskeiðið (leið A) verður eftirtalda daga:
Þriðjud. 16. ágúst kl. 9-16
Miðvikud. 16. ágúst kl. 9-16
Fimmtud. 17. ágúst kl. 9-16
Föstud. 19. ágúst kl. 9-13
Sunnud. 21. ágúst kl. 11-12 (messa)

Vænst er þátttöku foreldra sunnud. 21. ágúst kl. 11-13 (messa og fundur eftir messu).
Ætlast er til að unglingarnir séu allan tímann alla dagana. Að fenginni reynslu er alveg útlokað að koma inn í námskeiðið eftir að það hefst eða sleppa úr dögum.

Vorið 2012 verður fermt í Grensáskirkju
- pálmasunnudag 1. apríl kl. 13:30
- annan í páskum 9. apríl kl. 11:00
- sunnud. 15. apríl kl. 13:30

Skráning í fermingarstarfið er hafin á heimasíðu safnaðarins kirkjan.is/grensaskirkja en slóðin er
kirkjan.is/grensaskirkja/safnadarstarf/skraning_fermingar_2012/
Vinsamlegast skráið væntanleg fermingarbörn fyrir 1. júní svo við vitum tímanlega hver þátttakan verður.

Með kærri kveðju og von um gott samstarf,
sóknarprestur og starfsfólk Grensáskirkju

Áslaug Sif Guðjónsdóttir, 6/8 2011 kl. 15.50

     

    Grensáskirkja, Háaleitisbraut 66, 103 Reykjavík. Sími 5284410 · Kerfi RSS