Grensáskirkja

 

12 spora starf verður í Grensáskirkju í vetur, á fimmtudagskvöldum frá kl. 19:15-21:15

Fyrsta kynningarkvöldið verður fimmtudaginn 8. september. Það kvöld og næstu tvö fimmtudagskvöld er hægt að koma og kynna sér starfið án allra skuldbindinga um áframhaldandi þátttöku en hóparnir loka 29. september. Tólf spora starfið er andlegt ferðalag, sjálfsstyrking, sem byggist á því að vinna með sjálfa(n) sig en jafnframt að gefa og þiggja í hópi. Ekki er gengið út frá því að þátttakendur eigi við nein sértæk vandamál að stríða heldur er um að ræða almenna uppbyggingu í því skyni að kynnast sínum innri manni nánar og geta þannig betur tekist á við viðfangsefni og áskoranir lífsins.
12 sprora starfinu lýkur í apríl, hefst aftur í september og verður þá auglýst nánar.

Áslaug Sif Guðjónsdóttir, 15/8 2011 kl. 0.00

     

    Grensáskirkja, Háaleitisbraut 66, 103 Reykjavík. Sími 5284410 · Kerfi RSS