Kyrrðarstundir og hversdagsmessur.
Kyrrðarstundir eru í hádeginu alla þriðjudaga. Stundin hefst með orgelleik en síðan er sunginn sálmur, lesinn ritningarlestur og gengið til altaris. Eftir altarisgönguna er fyrirbænastund þar sem beðið er fyrir bænarefnum sem borist hafa. Stundinni í kirkjunni lýkur upp úr kl. 12:30 og þá er hægt að kaupa léttan málsverð á sanngjörnu verði. Kyrrðarstundir byrjar aftur eftir sumarfrí þriðjudaginn 6. september.
Hversdagsmessur alla fimmtudaga kl. 18:10. Um er að ræða einfalda messu á rúmhelgum degi.
Þorvaldur Halldórsson leiðir söng en einnig er ritningarlestur, hugleiðing út frá orði Guðs og altarisganga. Messunni lýkur rétt fyrir kl. 19:00. Tilvalið er að koma við í kirkjunni að loknum vinnudegi eða skreppa þangað rétt fyrir kvöldmat í hversdagsmessu. Fyrsta hversdagsmessa haustsins verður fimmtudaginn 1. september. Allir hjartanlega velkomnir.
.
Áslaug Sif Guðjónsdóttir, 22/8 2011 kl. 7.00