Grensáskirkja

 

Barnakór í Grensáskirkju

Í vetur verður starfræktur barnakór fyrir 6-9 ára gömul börn í safnaðarheimili Grensáskirkju og verða kóræfingar á fimmtudögum frá kl. 16:00 til 17:00. Fyrir þau börn sem eru á frístundaheimilum Álftamýrarskóla og Hvassaleitisskóla verður rúta sem kemur og sækir þau rétt fyrir kl. 16:00 og fer með þau í Grensáskirkju. Foreldrar geta síðan sótt börn sín þangað eftir kóræfingu og verður kirkjan opin til kl. 17:15 eins og frístundaheimilin. Kórinn og rútuferðirnar eru foreldrum að kostnaðarlausu.

Kórstjóri er Ásta Haraldsdóttir sem hefur áður starfað með kórum á vegum kirkjunnar en hún hefur einnig starfað með fleiri kórum meðal annars Stúlknakór Reykjavíkur og Stúlknakór Háteigskirkju.

Efnisskrá vetrarins verður fjölbreytt og skemmtileg og einnig er gert ráð fyrir því að þau fái að koma fram og syngja fyrir aðra við einhver tækifæri.

Foreldrar/forráðamenn sem vilja nýta rútuferðina frá frístundaheimilum í sókninni til kirkjunnar vinsamlega skilið leyfisbréfi til starfsfólks frístundaheimilisins.

Nánari upplýsingar er að fá í Grensáskirkju s. 528-4410 og hjá Ástu í síma 892-3162.
Öll börn eru hjartanlega velkomin.

Áslaug Sif Guðjónsdóttir, 7/9 2011 kl. 11.42

     

    Grensáskirkja, Háaleitisbraut 66, 103 Reykjavík. Sími 5284410 · Kerfi RSS