Helgihald
Upplýsingar um helgihald í Grensáskirkju má fá hér fyrir neðan. Boðið upp á guðsþjónustur hvern sunnudag, og hádegisbænir á þriðjudögum. Þá er kirkja heyrnarlausra með guðsþjónustur í Grensáskirkju. Þess utan eru helgistundir í tengslum við fjölbreytt starf safnaðarins.
Guðsþjónustur á sunnudögum
Guðsþjónustur í Grensáskirkju eru hvern helgan dag kl. 11:00. Yfir vetrarmánuðina er boðið upp á barnastarf samhliða guðsþjónustunni í safnaðarsal.
Hversdagsmessur
Á fimmtudögum frá ágústlokum og út apríl er boðið upp á hversdagsmessur í Grensáskirkju kl. 18:00. Lögð er áhersla á notalega stund í húsi Drottins að loknum vinnudegi með einföldu formi, lofgjörð, bæn og altarisgöngu.
Kirkja heyrnarlausra
Kirkja heyrnarlausra hefur guðsþjónustu í Grensáskirkju mánaðarlega. Þær eru að jafnaði kl. 14:00 þriðja sunnudag í mánuði.
Hádegishelgihald á þriðjudögum
Á þriðjudögum yfir vetrarmánuðina er boðið upp á bænastund með altarisgöngu hvern þriðjudag kl. 12:10. Fyrir stundina er leikin tónlist á orgel kirkjunnar. Eftir stundina er boðið upp á létta máltíð á vægu verði í safnaðarheimili. Hægt er að koma bænarefnum á framfæri við sóknarprest með tölvupósti á olafur.johannsson@kirkjan.is
Bænastundir
Tvisvar í viku að jafnaði er boðið upp á bænastundir fyrir söfnuðinum og starfi kirkjunnar. Annars vegar komum við saman kl. 12:10 á þriðjudögum í kirkjunni og hins vegar á sunnudögum fyrir guðsþjónustu kl. 10:15. Komið er saman í kapellu kirkjunnar.