Sunnudaginn 1. maí kl. 11 er barnastarf í umsjá Jóhönnu Sesselju Erludóttur og unglinga úr kirkjustarfinu. Að þessu sinni verður barnastarfið í styttra lagi og í lok samverunnar verður boðið upp á grillaðar pylsur og djús.
Messa kl. 11. Altarisganga. Kirkjukór Grensáskirkju syngur. Organisti Árni Arinbjarnarson. Samskot til ABC-barnahjálpar.
Sama dag verður árleg kaffisala ABC-barnahjálpar í safnaðarheimili.
Halldór Elías Guðmundssson, 28/4 2005
Á aðalsafnaðarfundi Grensáskirkju sem haldinn var 19. apríl s.l. voru reikningar safnaðarins samþykktir samhljóða.
Ársreikningur Grensáskirkju 2004.
Halldór Elías Guðmundssson, 26/4 2005
Árleg kaffisala ABC-barnahjálpar 1. maí verður að þessu sinni í safnaðarheimili Grensáskirkju.
Heimasíða ABC-bjarnahjálpar.
Halldór Elías Guðmundssson, 24/4 2005
Það verður margt um að vera á fyrsta sunnudag eftir páska. Guðsþjónusta og barnastarf verða að venju kl. 11. Samskot í guðsþjónustunni renna til ABC-barnahjálpar.
Fermingarmessa verður kl. 13:30 í kirkjunni. Kirkjukór Grensáskirkju syngur. Organisti Árni Arinbjarnarson. Prestar Ólafur Jóhannsson og Petrína Mjöll Jóhannesdóttir
Halldór Elías Guðmundssson, 29/3 2005
Fermingarmessa verður í Grensáskirkju kl. 10:30, annan í páskum 28. mars. Kirkjukór Grensáskirkju syngur. Organisti Árni Arinbjarnarson. Prestar Ólafur Jóhannsson og Petrína Mjöll Jóhannesdóttir.
Halldór Elías Guðmundssson, 22/3 2005
Guðbjörg Hákonardóttir (Gugga) opnar myndlistarsýningu í forsal Grensáskirkju sunnudaginn 13. mars að lokinni guðsþjónustu.
Gugga stundaði nám m.a. við Myndlista-og handíðaskóli Íslands á árunum´91-´95 og við Listaakademíuna í Helsinki haustið ´93. Þá hefur hún haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum.
Halldór Elías Guðmundssson, 12/3 2005
Aðalsafnaðarfundur Grensáskirkju verður haldinn í safnaðarheimili kirkjunnar þriðjudaginn 19. apríl kl. 18:00 á fundinum verða hefðbundin aðalfundarstörf, ársreikningar safnaðarins lagðir fram til samþykktar og kosnir þrír aðalmenn í sóknarnefnd til fjögurra ára auk tveggja varamanna til tveggja ára og tveggja varamanna til fjögurra ára.
Starfsreglur um sóknarnefndir og framkvæmd aðalsafnaðarfundar.
Halldór Elías Guðmundssson, 12/3 2005
Í ár verða fjórar fermingarathafnir í Grensáskirkju. Á pálmasunnudag verða tvær, kl. 10:30 og 13:30, þá verður fermingarathöfn á annan í páskum kl. 10:30 og loks sunnudaginn 3. apríl kl. 13:30.
Lesa áfram …
Halldór Elías Guðmundssson, 12/3 2005
Æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar er núna á sunnudaginn 6. mars. Í tilefni af því er gert ráð fyrir þátttöku allra fermingarbarna safnaðarins í guðsþjónustu, sunnudagaskólinn tekur þátt í guðsþjónustunni í kirkjunni og allir aðrir eru hjartanlega velkomnir. Sr. Ólafur þjónar að vanda en hugleiðing dagsins er í höndum Halldórs E. framkvæmdastjóra kirkjunnar.
Halldór Elías Guðmundssson, 28/2 2005
Næsta sunnudag 27. febrúar verður guðsþjónusta Grensássafnaðar kl. 11:00 með óvenjulegu sniði. Í kirkjuna kemur Stoppleikhópurinn og flytur okkur barnaleikritið Kamilla og þjófurinn. Börn og fullorðnir verða því saman í kirkjuskipinu og njóta þess að horfa saman á spennandi og skemmtilegt leikrit sem kennir okkur e.t.v. eitthvað áhugavert um Guð.
Allir velkomnir!
Halldór Elías Guðmundssson, 25/2 2005