Fimmtudaginn 9. desember kl. 20 var samvera syrgenda í Grensáskirkju. Samveran var sérstaklega ætluð þeim sem misst höfðu ástvin og vildu staldra við á aðventunni. Tæplega 400 manns komu í kirkjuna og nutu vandaðs tónlistarflutnings og tóku þátt í bænagjörð.
Lesa áfram …
Halldór Elías Guðmundssson, 10/12 2004
Söfnun fermingarbarna fyrir Hjálparstarf kirkjunnar fór fram mánudaginn 1. nóvember síðastliðinn. Alls komu rúmlega 40 börn og tóku þátt í söfnuninni milli kl. 16:45 og 21:00. Ekki náðist að fara í alla sóknina en alls söfnuðust ríflega 113.000 krónur.
Halldór Elías Guðmundssson, 7/11 2004
Veðrið hafði mikil áhrif á fermingarnámskeið Grensáskirkju í Vatnaskógi. Ekki reyndist unnt að hafa neina útidagskrá á mánudagskvöldi og jafnframt seinkaði brottför vegna bálviðris á Kjalarnesi. Þrátt fyrir veðrið skemmtu sér allir hið besta og kom íþróttahúsið í Vatnaskógi að góðum notum.
Hægt er að sjá myndir af veðrinu á námskeiðinu á heimasíðu KFUM og KFUK.
Halldór Elías Guðmundssson, 19/10 2004
Á fimmtudagskvöldum er boðið upp á tólf spora starf í Grensáskirkju. Tólf spora starfið er andlegt ferðalag, sjálfsstyrking, sem byggist á því að vinna með sjálfa(n) sig en jafnframt að gefa og þiggja í hópi. Ekki er gengið út frá því að þátttakendur eigi við nein sértæk vandamál að stríða heldur er um að ræða almenna uppbyggingu í því skyni að kynnast sínum innri manni nánar og geta þannig betur tekist á við viðfangsefni og áskoranir lífsins.
Tólf spora starfið er 30 vikna ferli en fyrstu skiptin er hægt að koma og kynna sér ferlið án skuldbindinga um áframhaldandi þátttöku.
Halldór Elías Guðmundssson, 18/10 2004
KFUM og KFUK í samstarfi við kirkjuna annast vikulega fundi fyrir 9 til 12 ára stelpur og stráka í Grensáskirkju í vetur. Fundirnir eru á þriðjudögum frá kl. 17-18. Fyrir og eftir fundi ekur KFUM og KFUK strætóinn að Tónabæ bíður börnum far í kirkjuna og heim aftur.
Halldór Elías Guðmundssson, 17/9 2004
Grensáskirkja býður upp á foreldramorgna kl. 10-12 á mánudögum í vetur. Foreldramorgnar eru tilboð fyrir foreldra sem eru heimavið um lengri eða skemmri tíma með ungbörnum. Þar gefst tækifæri til að hitta aðra foreldra í sömu sporum, leyfa börnunum að leika sér með öðrum börnum og fá fræðslu um umönnun. Umsjón með foreldramorgnunum er í höndum Sr. Petrínu Mjallar.
Halldór Elías Guðmundssson, 15/9 2004
- Sýning Karls Jóhanns Jónssonar
Sunnudaginn 19. september verður opnuð í forsal Grensáskirkju myndlistarsýning Karls Jóhanns Jónssonar. Meginefni sýningarinnar eru portret, ekki þó eingöngu af fólki heldur einnig brauðum og trjám.
Í fjölmörgum mynda Karls má sjá trúarlegar skírskotanir.
Vefsíða Karls Jóhanns.
Halldór Elías Guðmundssson, 14/9 2004
Leikmannaskóli þjóðkirkjunnar er að hefja enn eitt starfsárið. Á síðasta starfsári fékk skólinn inni í Grensáskirkju fyrir hluta af námskeiðum skólans og verður svo einnig í ár. Upplýsingar um starf hans og námskeið á haustmisseri má fá á vefsíðunni: WWW.KIRKJAN.IS/LEIKMANNASKOLI.
Halldór Elías Guðmundssson, 1/9 2004
Á vef kirkjunnar, kirkjan.is, eru birt kort af sóknarmörkum í Reykjavíkurprófastsdæmum. Þessi mörk eru í endurskoðun en ef þú ert ekki viss um hvaða kirkju þú tilheyrir er hægt að sjá það hér.
* Listi yfir sóknarmarkakort.
* Sóknarmörk Grensáskirkju.
Halldór Elías Guðmundssson, 6/7 2004
Sóknarpresturinn okkar sr. Ólafur Jóhannsson var kjörinn formaður Prestafélags Íslands á aðalfundi félagsins 29. apríl síðast liðinn. Það er gaman til þess að vita að presturinn okkar sé svo mikils metinn í hópi kollega og minnir okkur á hversu lánssöm við erum hér í Grensáskirkju að hafa svo góðan þjón hér við söfnuðinn.
Halldór Elías Guðmundssson, 30/4 2004