Safnaðarstarf
Margvíslegt safnaðarstarf er í Grensáskirkju. Má þar nefna öflugt kvenfélag, barnastarf á sunnudögum, foreldramorgnar, 12 spora starf, Biblíulestrar og fjölbreytt helgihald. Þá starfar við söfnuðinn öflugur kór svo eitthvað sé nefnt.
Kvenfélag Grensássóknar
Kvenfélag Grensássóknar hefur verið starfrækt nær alla tíð frá stofnun sóknarinnar 1963. Félagið tekið mikinn þátt í uppbyggingu kirkjunnar og staðið að margvíslegum samverum fyrir sóknarbörn á þeim tíma. Fundir félagsins eru mánaðarlega, annað mánudagskvöld í mánuði.
ud KFUM&KFUK í Grensáskirkju
Í vetur býður KFUM&KFUK í samstarfi við Grensáskirkju upp á starf í kirkjunni fyrir 13-16 ára unglinga. Fundirnir verða á miðvikudagskvöldum í vetur kl. 20:00-21:30.
yd KFUM&KFUK í Grensáskirkju
KFUM&KFUK hefur hafið starf fyrir 10-12 ára krakka í Grensáskirkju. Starfið byggir á vikulegum fundum frá september og fram í apríl þar sem komið er saman. Sungið, farið í leiki eða heimsóknir og hlustað á Guðs orð. Ekki er kominn staðfestur fundatími fyrir starfið veturinn 2009-10.
vd KFUM&KFUK í Grensáskirkju
Í vetur verður Grensáskirkja með starf fyrir 8-9 ára börn kl. 14:30-15:30 á mánudögum og fyrir 6-7 ára börn á þriðjudögum kl. 14:30-15:30 í kirkjunni. Rúta fer frá Álftamýrar- og Hvassaleitisskóla og tekur börnin með sem hafa verið skráð til þátttöku. Foreldrum er bent á að nauðsynlegt er að skrá börnin fyrirfram til þátttöku á netfangið GRENSASKIRKJA@KIRKJAN.IS.
Samverur eldri borgara
Hvern miðvikudag frá septemberbyrjun og fram til maíloka eru samverur fyrir eldri borgara í Grensáskirkju. Samveran byggist á Biblíulestri undir stjórn sóknarprestsins okkar, sr. Ólafs Jóhannssonar og jafnframt annast kvenfélagið léttar kaffiveitingar. Samverurnar standa í u.þ.b. tvær klukkustundir, frá kl. 14-16.