Fræðsla
Námskeiðahald
Mikilvægur þáttir í starfi safnaðarins er að bjóða upp á fræðslu um kristna trú og trúarleg viðfangsefni. Fermingarfræðslan er að sjálfsögðu hluti af þeirri fræðslu. Þá er einnig boðið upp á fræðslukvöld og námskeið í kirkjunni sem eru opin fólki á öllum aldri. Umfjöllun um fræðslukvöld og námskeið verður birt hér.
Alfa-námskeið
Alfa er ódýrt, skemmtilegt og lifandi 10 vikna námskeið um kristna trú. Alfa námskeið eru nú haldin í flestum kristnum kirkjudeildum í yfir 130 löndum um allan heim.
Námskeiðið hefur vakið gífurlega athygli kirkjuleiðtoga, þjóðarleiðtoga og fjölmiðla enda hafa um 4 milljónir sótt námskeiðið og komist í kynni við kristna trú á skynsaman hátt.
Alfa námskeið hafa verið haldin á Íslandi í nokkur ár og hefur þátttaka aukist á hverju ári. Grensáskirkja bíður upp á ALFA-námskeið með reglubundnum hætti frá og með vorinu 2003. Nánari upplýsingar um ALFA-námskeiðin eru á WWW.ALFA.IS.
Tólf sporin - andlegt ferðalag
Boðið er upp á 30 vikna andlegt ferðalag í Grensáskirkju, þar sem notast er við 12 sporakerfið til að takast á við trúarlegar spurningar og lífið sjálft.
Upplýsingar um tólf sporin - andlegt ferðalag.
Fermingarfræðsla
Fermingarfræðsla í Grensássöfnuði er fyrir 13-14 ára unglinga. Notast er við kennslubókina Líf með Jesú. Þá er farið í sólarhringsferð í Fermingarbúðir í Vatnaskógi og gert ráð fyrir þátttöku fermingarbarna í guðsþjónustum safnaðarins.
Leikmannaskóli þjóðkirkjunnar
Leikmannaskóli þjóðkirkjunnar hefur aðstöðu í Grensáskirkju fyrir fjölbreytt námskeið um kirkju og kristni. Nánari upplýsingar eru á vef skólans.