Grindavíkurkirkja

 

Fræðsla

Námskeiðaröð í Grindavíkurkirkju vor 2012

Hugleiðslunámskeið
Mandölur
Bókagerð
Minningavinna

Dagsetningar námskeiða

Hugleiðslunámskeið með innleiðingu í að vinna með  Mandölur.
Föstudagur  20. janúar 2012 frá kl. 19.00 – 22.00 og
laugardagur 21. janúar frá kl. 10.00 – 17.00.

Mandala teiknuð og máluð frá grunni,
hugleitt inná Mandöluna og útskýrð tákn og litir.
Föstudagur  10 febrúar frá kl. 19.00 – 22.00 og laugardagur 11. febrúar frá  kl. 10.00 – 17.00.

Bókargerð
Föstudagur 2. mars frá k l. 19.00 – 22.00 og laugardagur 3. mars frá kl. 10.00– 17.00.

Minningavinna
Föstudagur 20. apríl frá kl. 19.00 – 22.00 og laugardagur 21. apríl frá kl.10.00 – 17.00.

Eftir hvert  námskeið verður bænastund.

Námskeiðsgjald
er kr. 5.000.- og innifalið er efniskostnaður og léttur hádegisverður í laugardagshádegi.

Nánari upplýsingar og skráningu veitir sr. Elínborg Gísladóttir sími 696-3684 eða srelinborg@simnet.is

Einnig  er hægt að fá upplýsingar hjá Sigrúnu
Gunnarsdóttur, á sigrung@mi.is

og í síma 5551727.

Hugleiðslunámskeið
Hugleiðslunámskeiðmeð innleiðingu í mandölur.
Farið verður í að útskýra hugleiðsluna s.s. hvernig hugleiðum við, hvers vegna
hugleiðum við og hvers má vænta af reglulegri hugleiðslu.
Mandölu kynntar, málaðar tilbúnar Mandölur og kennt hvernig lesa má úr þeim.

Mandala
Orðið Mandala er
komið úr Sanskrít sem er hið forna mál Indverja og táknar hinn helga hring,
hina heilögu miðju eða eina heild þ.e. líkama og sál. Mandölur eru til í nánast
öllum trúarbrögðum.

Uppsprettan í mynstri hverrar Mandölu er leit okkar að sjálfsþekkingu og stöðu

okkar í alheiminum, ferðalag okkar inná við. Kennt verður að búa til Mandölu frá grunni
og útskýrð þau tákn og litir sem málaðir eru í Mandöluna.

Bókargerð
Kennt verður að búa til einfalda bók sem útheimtir ekki mikinn tækjabúnað og ætti
fólk eftir námskeiðið að geta búið til slíka bók sjálft.  Það mætti hugsa sér að nota Mandöluna sem
þema í þessa bók og væri tilvalið að nota hana sem bænabók.

Minningavinna Að minnast og gleðjast

Öll eigum við  dýrmætan fjársjóð í formi minninga. Ljósmyndir, bréf, gamall bíómiði, hárlokkur
eða aðrir smáhlutir, sem minna á ljúfan atburð liggja oft í felum. Á námskeiðinu kynnum við leiðir til setja þennan fjársjóð upp á fallegan hátt þar sem við fáum betur notið þeirra. Við getum líka gefið þeim, sem minningarnar tengjast, mjög persónulega og fallega gjöf. Þá er ekki síður
skemmtilegt fyrir fjölskylduna að hjálpast að og skemmta sér við að rifja upp
og njóta liðinna atburða.

Bæna og hugleiðsluhópur
Ein manneskja getur sent bæn, en þar sem tveir eða fleiri
koma saman, eykst bænakrafturinn og tengsl okkar við ærði mátt. Þess vegna
myndar fólk hringi til að magna kraftinn sem lagður er í bænina.

Viltu fara í sjálfsvinnu og þroska þig til að verða
betri manneskja og til að líða betur. Ein besta leiðin til þess er að sitja í
bæna og hugleiðsluhring.

Eftir hugleiðslunámskeiðið er ætlunin að stofna
,,Hugleiðsluhóp“ sem hittist vikulega. Einnig mætti hugsa sér að tengja saman
Hugleiðsluna og Íhugunina.

     

    Grindavíkurkirkja, við Ránargötu, 240 Grindavík. Sími 426-8675 , fax 426-7675 · Kerfi RSS