Safnaðarstarf
Í Hafnarfjarðarkirkju er öflugt safnaðarstarf fyrir fólk á öllum aldri. Á heimasíðu kirkjunnar er að finna nánari upplýsingar um dagskrá kirkjunnar. Gjörðu svo vel og skoðaðu vefinn okkar!
Sjálfboðaliðar velkomnir
Langar þig til að leggja Hafnarfjarðarkirkju lið, vera í góðum hópi og gera gagn? Kirkjustarfið í Hafnarfjarðarkirkju er að aukast og vex aðeins ef fleiri rétta hjálparhönd. Störfin eru margs konar. Sumir vilja útdeila sálmabókum, aðrir raða stólum í safnaðarheimili, sinna garðvinnu á kirkjulóðinni, leggja til blóm á altarið eða hjálpa til við barnastarfið í miðri viku. Er eitthvað sem þú gætir hugsað þér að gera fyrir kirkjuna þína eða fólkið í sókninni? Sjálfboðin störf eru til við allra hæfi, líka þeirra sem eru á unglingsaldri. Hafðu samband og ræddu við starfsfólk kirkjunnar.
Upplýsingar
Hafnarfjarðarkirkja er við Strandgötu. Sími 520-5700. Skrifstofan er opin frá kl. 10 – 16 vikra daga.